Sveitarstjórn
Ása Valdís Árnadóttir oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.
1. Fundargerðir.
a) Fundargerð 318. fundar skipulagsnefndar UTU, 28. janúar 2026.
Mál nr. 13, 14, 15, 16 og 20 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 318. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 28. janúar 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 13; Öndverðarnes 1 L168299; Aukið byggingarmagn; Deiliskipulagsbreyting – 2509074.
Lögð er fram, eftir grenndarkynningu, tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Öndverðarness L168299 í Grímsnesi. Breytingin nær til þriggja deiliskipulaga frístundabyggðar (F33). Í breytingunni felst að byggingarmagn er aukið: Aðalhús skal ekki vera stærra en 200 fm að grunnfleti, nýtingarhlutfall skal þó aldrei vera meira en 5% af stærð lóðar. Hámarkshæð mænis frá gólfi er 6 metrar, en frá jörðu 6,5 metra. Önnur hús á lóð hafa hámarkshæð frá gólfi 3,5 metra en frá jörðu 4,0 metra. Almennt þá skal hæð frá gólfkóta að aðliggjandi landi ekki vera meiri en 0,5 metrar. Heimild er til þess að byggja kjallara undir húsi, þar sem aðstæður gefa tilefni til, t.d. þar sem landhalli er til staðar. Heimilt er einnig að byggja geymsluhús/gestahús allt að 40 fm innan nýtingarhlutfalls ofanjarðar. Að öðru leyti gilda deiliskipulagsskilmálar í samþykktu deiliskipulagi. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að synja tillögu um breytingu á deiliskipulagi í samræmi við bókun sem gerð var á 604. fundi sveitarstjórnar þann 26. nóvember 2025 undir lið 1. Á meðan óvissa ríkir telur sveitarstjórn sér ekki fært að taka ákvarðanir um frekari þróun frístundabyggða innan Grímsnes- og Grafningshrepps.
Mál nr. 14; Kerhraun B 136 L208922 og B137 L208923; Breytt mörk lóða; Deiliskipulagsbreyting – 2601030 .
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Kerhrauns B 136 L208922 og Kerhrauns B 137 L208923 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst að mörkum lóðanna er breytt.
Lóðin Kerhraun 136 minnkar í 4.497 fermetra úr 6.368 fermetrum og lóðin Kerhraun 137 stækkar í 7.500 fermetra úr 5.629 fermetrum. Byggingarreitum lóðanna er breytt vegna breyttra lóðarmarka.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins og að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Jafnframt er mælst til þess að gerð verði merkjalýsing samhliða deiliskipulagsbreytingunni.
Mál nr. 15; Stóri-Háls L170827; Úr landbúnaðarsvæði í skógræktarsvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2601057.
Lögð er fram skipulagslýsing sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Með breytingunni verður sett inn nýtt skógræktar- og landgræðslusvæði á Stóra-Hálsi (L170827) og heimiluð skógrækt á allt að 100 ha.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða aðalskipulagsbreytinguna til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 16; Berjaholtslækur; Stækka byggingarreit; Deiliskipulagsbreyting – 2510031.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar, eftir grenndarkynningu, sem tekur til Berjaholtslækjar 5 L197771 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst stækkun byggingarreits þannig að fjarlægð frá lóðarmörkum er 10 metrar á alla vegu. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða deiliskipulagsbreytingu eftir grenndarkynningu og mælist sveitarstjórn til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gögnin verði send Skipulagsstofnun til varðveislu í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 20; Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 26-242 – 2601003F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-242.
b) Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings (SVÁ), 17. desember 2025.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
c) Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings (SVÁ), 7. janúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
d) Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings (SVÁ), 19. janúar 2026.
Mál nr. 2 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings (SVÁ), dagsett 19. janúar 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar
Mál nr. 2 Framtíðarskipulag SVÁ.
Formaður kynnti þær framtíðar sviðsmyndir um skipan starfsemi SVÁ sem settar hafa verið fram í nýrri úttekt á starfseminni sem gerð var af Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. Stjórn ræddi ítarlega þá möguleika sem eru til staðar til eflingar starfseminnar og fékk einnig fram sjónarmið deildarstjóra varðandi sviðsmyndirnar.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að ráðinn verði forstöðumaður, tímabundið í eitt ár í fullt starf fyrir Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.
e) Fundargerð 5. fundar fagnefndar (SVÁ), 13. janúar 2026.
Mál nr. 1, 2 og 3 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 5. fundargerð fagnefndar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings (SVÁ), dagsett 13. janúar 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 1 ; Tillaga að reglum um akstursþjónustu aldraðra.
Lögð fram drög að reglum um akstursþjónustu aldraðra.
Varðandi lið 1 í fundargerð þá bendir sveitarstjórn á eftirfarandi í 2. gr.: 1449 ,,Markmið reglna þessara er að tryggja eldri borgurum í Árnesþingi...“. Æskilegt væri að nefna sveitarfélögin sem standa að byggðasamlaginu undir greininni í stað Árnesþings.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagðar reglur um akstursþjónustu eldri borgara hjá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. með fyrirvara um uppfærðan texta í 2. grein.
Mál nr. 2; Tillaga að viðmiðunarreglum vegna einstaklingsstuðnings.
Lögð eru fram drög að viðmiðunarreglum vegna einstaklingsstuðnings, félagslegrar liðveislu og persónulegrar ráðgjafar fyrir börn.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu að viðmiðunarreglum vegna einstaklingsstuðnings.
Mál nr. 3; Tillaga að hækkun fjárhagsaðstoðar og breytingum á gjaldskrám.
Lagðar eru fram tillögur um hækkun á eftirfarandi gjaldskrám;gjaldskrá fyrir stuðningsþjónustu (félagslega heimaþjónustu) hjá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings og gjaldskrá vegna ferðaþjónustu aldraðra og fatlaðs fólks hjá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings. Jafnframt voru lagðar fram tillögur að hækkun á fjárhagsaðstoð um 3,9% og hækkun á greiðslum fyrir stuðningsfjölskyldur í barnavernd og velferðarþjónustu fyrir árið 2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögur að hækkun fjárhagsaðstoðar og breytingar á gjaldskrám velferðarþjónustu fyrir árið 2026. Sveitarstjórn kallar eftir því að í gjaldskrá vegna ferðaþjónustu aldraðra og fatlaðs fólks hjá Skóla-og velferðarþjónustu Árnesþings bs. verði notað íslenska orðið svæði í stað enska orðsins zone.
f) Fundargerð fundar stjórnar Listasafns Árnesinga bs, 27. janúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
g) Fundargerð 20. fundar stjórnar Byggðasafns Árnesinga, 28. janúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
h) Fundargerð aukaaðalfundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands bs., 16. janúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
i) Fundargerð 343. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands bs., 16. janúar 2026.
Mál nr. 4 og 6 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram fundargerð 343. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands bs., dagsett 16. janúar 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 4 Samþykktir Sorpstöðvar Suðurlands.
Á aukaaðalfundi SOS, 16. janúar 2026, voru samþykktar breytingar á samþykktum SOS og samþykktunum vísað til staðfestingar sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga SOS sem taka þurfa breyttar samþykktir fyrir í tveimur umræðum áður en þær eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda.
Stjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra SASS að senda breytingar á samþykktunum á sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaga SOS til samþykktar í tveimur umræðum samhliða fundargerð aukaaðalfundarins. Málið er tekið fyrir sem sér mál síðar í dagskránni undir lið 11.
Mál nr. 6 Viðauki við fjárhagsáætlun Sorpstöðvar Suðurlands árið 2026.
Á aukaaðalfundi SOS, 16. janúar 2026, var samþykktur viðauki við fjárhagsáætlun SOS fyrir árið 2026 að fjárhæð 14.500.000 kr. vegna ráðningar starfsmanns í 100% stöðugildi hjá SASS á kostnað SOS, sbr. nánari umfjöllun undir næsta fundarlið. Samhliða lækkar liðurinn stjórnar- og nefndarlaun í fjárhagsáætlun ársins 2026 um 1.000.000 kr.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða viðauka við fjárhagsáætlun Sorpstöðvar Suðurlands fyrir árið 2026.
j) Fundargerð 992. fundar stjórnar Samtaka íslenskra sveitarfélaga, 23. janúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2. Gjaldskrá Íþróttamiðstöðvarinnar Borg.
Fyrir fundinum liggur uppfærð gjaldskrá Íþróttamiðstöðvarinnar Borg þar sem breytingar felast meðal annars í skýrari sundurliðun gjalda fyrir börn og ungmenni, þar sem aðskilin eru árskort í sund annars vegar og ræktarsal hins vegar. Jafnframt var bætt inn í gjaldskrána mánaðarkort í Íþróttamiðstöðina.
Inn á fundinn kom forstöðumaður íþróttamannvirkja, Agnar Þór Helgasson.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða uppfærða gjaldskrá fyrir Íþróttamiðstöðina Borg og hún taki gildi frá og með 4. febrúar 2026. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn samhljóða að frá og með 4. febrúar 2026 fái börn og ungmenni sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu árskort í sund í Íþróttamiðstöðina Borg að gjöf frá sveitarfélaginu.
3. Reglur um lýðheilsu- og tómstundastyrk.
Fyrir fundinum liggja endurskoðaðar reglur um lýðheilsu- og tómstundastyrk þar sem helsta breytingin liggur í því að reglunum er skipt upp í tvær aðskildar reglur í stað einnar, annars vegar fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0–18 ára og hins vegar fyrir 67 ára og eldri auk þess sem ræktarkort ungmenna er gert styrkhæft.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða uppfærðar reglur um lýðheilsu- og tómstundastyrki annars vegar fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0 – 18 ára og hins vegar fyrir eldri borgara 67 ára og eldri.
4. Samstarfssamningur við Hjálparsveitina Tintron.
Fyrir liggja drög að samstarfssamning við Hjálparsveitina Tintron.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög og felur sveitarstjóra að uppfæra samninginn í samræmi við umræður á fundinum. Sveitarstjóra falið að skrifa undir samninginn.
5. Stjórnsýslukæra.
Fyrir fundinum liggur tilkynning um að mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur fellt niður stjórnsýslukæru í máli MRN25120056.
6. Úrskurður í máli nr. UUA2511049.
Fyrir fundinum liggur úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dagsettur 23. janúar 2026, í kærumáli nr. UUA2511049. Í úrskurðinum er kærumálinu vísað frá þar sem ekki liggur fyrir ákvörðun sem bindur enda á málið í skilningi 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, enda hafi sveitarstjórn ekki tekið formlega ákvörðun í málinu.
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða framkvæmd sveitarstjóra í málinu, sem byggði á samþykkt um hundahald í Grímsnes- og Grafningshreppi nr. 60/2012.
7. Erindi frá innviðaráðneytinu.
Lagt fram til kynningar erindi frá innviðaráðuneytinu, dagsett 30. janúar 2026. Þar er farið yfir að ráðuneytinu hefur borist erindi, upprunalega stjórnsýslukæra, frá Láru V. Júlíusdóttur fyrir hönd Búsetufrelsi – samtaka fólks með fasta búsetu í heilsárshúsum í Grímsnes- og Grafningshreppi vegna meintrar ólögmætrar stjórnsýslu sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps. Hefur erindið verið sett í þann farveg að ráðuneytið hyggst taka til skoðunar hvort að ástæða sé til að fjalla formlega um stjórnsýslu sveitarfélagsins á grundvelli 112. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra og lögmanni sveitarfélagsins, Óskari Sigurðssyni hrl., að svara erindinu fyrir hönd sveitarfélagsins.
8. Life Icewater verkefnið.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands (HES) hlaut á árinu 2025 styrk frá Evrópusambandinu að fjárhæð kr. 17.690.000 í gegnum Life styrkjapakka ESB sem hluta af verkefni sem margar innlendar stofnanir og sveitarfélög koma að. Verkefnið snýr að innleiðingu vatnaáætlunar og sá hluti þess sem HES kemur að snýr að fráveitumálum við Þingvallavatn. Upphaflega leitaði Umhverfisráðuneytið til Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps um þátttöku í verkefninu, en úr varð að hýsa það hjá HES, enda hafði HES unnið að því að koma fráveitumálum við Þingvallvatn í betra lag. Heildarkostnaðaráætlun HES er kr. 29.492.000. Mótframlag er kr. 11.794.000 og kemur það í hlut Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps að greiða það. Styrkfjárhæðin frá ESB er greidd í þrennu lagi og hafa þegar verið greiddar 5.016.972 kr. til HES. Næsta greiðsla er væntanleg árið 2028 og lokagreiðsla 2031. Verkefni HES hefur ekki svo langan verktíma, en áætlað er að því verði lokið á árinu 2026. Fjárþörf HES vegna síðasta árs er kr. 8.558.281 og áætluð fjárþörf vegna ársins 2026 er kr. 15.916.328. Þar með er talið óbeinn kostnaður og reiknuð hlutdeild í launum framkvæmdastjóra HES, sem samtals nemur kr. 2.822.536. Lagt er til að Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppur greiði mótframlagið til HES í febrúar 2026, 50% hvort sveitarfélag, eða 5.897.000 kr. Einnig er lagt til að Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppur láni HES vegna launakostnaðar starfsmanns og útlagðs kostnaðar, allt að kr. 9.850.492 eða 4.925.246 kr hvort sveitarfélag, eftir því sem fjárþörf skapast vegna verkefnisins, og að HES endurgreiði það síðan til Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps þegar frekari styrkgreiðslur verða inntar af hendi frá ESB, annars vegar á árinu 2028 og hins vegar á árinu 2031.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu að greiðslufyrirkomulagi en mótframlag til HES rúmast innan fjárhagsáætlunar 2026. Viðauki verður lagður fyrir sveitarstjórn þegar að til viðbótarframlags kemur.
9. Úttekt á starfsemi Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.
Lögð er fram til kynningar úttekt á starfsemi Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps þakkar Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri fyrir ítarlega úttekt á starfsemi Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs., sem unnin var að beiðni stjórnar byggðasamlagsins. Sveitarstjórn tekur fram að frá því úttektin var gerð hafa þegar verið innleiddar ýmsar umbætur í starfseminni sem styrkja þjónustuna, m.a. hvað varðar húsnæði, mönnun, verkaskiptingu og innra samstarf. Með vísan til bókunar sveitarstjórnar fyrr á fundinum um samþykkt sviðsmyndar 1 og ráðningu forstöðumanns lítur sveitarstjórn á úttektina og þá vinnu sem þegar hefur farið fram sem mikilvægan grunn að áframhaldandi þróun þjónustunnar og leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf aðildarsveitarfélaga, stjórnar og starfsfólks byggðasamlagsins.
10. Úttekt á Brunavörnum Árnessýslu.
Lögð er fram til kynningar og umfjöllunar úttekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á Brunavörnum Árnessýslu, framkvæmd 21. október 2025.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps fagnar niðurstöðu úttektarinnar, þar sem fram kemur að engin úttektaratriði séu metin óásættanleg. Í úttektinni var eitt atriði metið með lítið frávik sem snýr að virkri brunavarnaáætlun fyrir starfssvæðið.
Sveitarstjórn staðfestir að Brunavarnir Árnessýslu eru að vinna að uppfærslu brunavarnaáætlunar í samræmi við leiðbeiningar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og að sveitarstjórn muni í kjölfar umfjöllunar senda stofnuninni svar með áætlun um úrbætur.
11. Samþykktir Sorpstöðvar Suðurlands bs., fyrri umræða.
Fyrir fundinum liggja drög að samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands bs., dögin eru lögð fram til fyrri umræðu. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa samþykktinni til síðari umræðu.
12. Aðalfundarboð Límtré Vírnets ehf. vegna rekstarárs 2025.
Lagt fram til kynningar fundarboð frá stjórnarformanni Límtrés Vírnet ehf, dagsett 29. janúar 2026, um að aðalfundur félagsins verði haldinn föstudaginn 13. febrúar 2026 í Reykjavík.
13. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II – H Frístundahús, fyrir Giljatungu 22, fnr. 2320009, 805 Selfossi.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 29. janúar 2026 um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II – H Frístundahús, fyrir Giljatungu 22, fnr. 2320009, 805 Selfossi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II, H Frístundahús að Giljatungu 22, fnr. 2320009 í Grímsnes- og Grafningshreppi með fyrirvara um jákvæða umsögn byggingarfulltrúa.
14. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 9/2026, „Saman gegn sóun - drög að stefnu og aðgerðaáætlun“.
Lagt fram til kynningar erindi frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, dagsett 16. janúar 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 9/2026, „Saman gegn sóun - drög að stefnu og aðgerðaáætlun“.
15. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 322. mál – Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030.
Erindi frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dagsett 21.01.2026, þar sem sent er til umsagnar 322. mál – Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030.
Lagt fram til kynningar.
16. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 307. mál – Breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæða.
Erindi frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dagsett 28. janúar.2026, þar sem sent er til umsagnar 307. mál – Breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæða.
Lagt fram til kynningar.
17. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 311. mál – Réttindavernd fatlaðs fólks.
Erindi frá Velferðarnefnd Alþingis, dagsett 28. janúar.2026, þar sem sent er til umsagnar 311. mál – Réttindavernd fatlaðs fólks.
Lagt fram til kynningar.
18. Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 22/2026, „Grænbók um byggðamál“.
Erindi frá Innviðaráðuneytinu þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 22/2026, „Grænbók um byggðamál“
Sveitarstjórn lítur á grænbókina sem mikilvægan grunn að mótun nýrrar byggðastefnu. Sveitarstjórn ítrekar þó fyrri bókanir sínar um samgöngumál, húsnæðismál og búsetufrelsi og leggur áherslu á að byggðastefna ríkisins styðji við jafnræði óháð búsetu, öruggar samgöngur, aðgengi að fjarskiptum og grunnþjónustu í dreifbýli.
Sveitarstjórn áréttar sérstaklega að skipulagsvald er hjá sveitarfélögunum og að ákvarðanir um búsetu, búsetuform og byggðaþróun byggjast á skipulagsáætlunum sveitarfélaga samkvæmt skipulags- og mannvirkjalögum. Með áherslu á búsetufrelsi er ekki verið að opna fyrir búsetu utan þeirra svæða sem sveitarfélög skipuleggja fyrir íbúðabyggð, heldur að tryggja að fólk geti búið þar sem það kýs innan ramma skipulagsáætlana og notið sambærilegra umhverfisgæða, innviða og opinberrar þjónustu óháð búsetu.
19. Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 23/2026, „Breytingar á reglugerðum er varða kosningar“.
Erindi frá Dómsmálaráðuneytinu, dagsett 30. janúar.2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 23/2026, „Breytingar á reglugerðum er varða kosningar“.
Lagt fram til kynningar.
20. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 3/2026, „Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum“.
Erindi frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, dagsett 26.01.2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 3/2026, „Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum“.
Sveitarstjórn vísar til fyrri bókunar sinnar um fyrirhugaðar breytingar á regluverki á sviði hollustuhátta og mengunarvarna. Sveitarstjórn tekur fram að þrátt fyrir framlagningu frumvarpsdraga séu enn ýmis álitaefni óleyst, einkum hvað varðar áhrif breytinganna á sveitarfélög, fjárhagsleg og fagleg.
Sveitarstjórn ítrekar mikilvægi þess að áframhaldandi vinna við málið fari fram í nánu samráði við sveitarfélög, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra viðeigandi hagaðila, og að tryggt verði að breytingarnar leiði hvorki til kostnaðarauka né þjónustuskerðingar fyrir sveitarfélögin.
Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl. 11:25