Fara í efni

Sveitarstjórn

614. fundur 22. apríl 2026 kl. 08:30 - 09:40 Stjórnsýsluhúsinu Borg og á Teams
Sveitarstjórn
  • Ása Valdís Árnadóttir oddviti
  • Björn Kristinn Pálmarsson
  • Dagný Davíðsdóttir
  • Ragnheiður Eggertsdóttir
  • Smári Bergmann Kolbeinsson
  • Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Fjóla Steindóra Kristinsdóttir.

Ása Valdís Árnadóttir oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.

Fundargerðir.
a) Fundargerð 323. fundar skipulagsnefndar UTU, 15. apríl 2026.
Mál nr. 9, 16, 17, 18, 19, 20, 21, 22, 31 og 32 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 323. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 15. apríl 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 9; Heiðarbær við Þingvallavatn; Frístundabyggð; Deiliskipulag - 2206013.
Lögð er fram uppfærð tillaga deiliskipulags frístundabyggðar Heiðarbæjar við Þingvallavatn. Markmið deiliskipulagsins er að hafa til staðar deiliskipulag sem gefur heildarmynd af svæðinu þar sem lóðarmörk, aðgengi og gönguleiðir eru skýrar. Jafnframt að fylgja eftir stefnu Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps um að til skuli vera deiliskipulag fyrir eldri frístundasvæði. Með deiliskipulagsgerðinni er unnið að því að samþætta lóðamörk, auka skilvirkni við umsýslu á lóðum ásamt því að ramma inn svæðið og nýtingu þess í heild og einstaka þætti þess s.s. innviði, náttúruvernd og aðgengi. Hættumat vegna ofanflóða hefur verið unnið fyrir tillöguna auk þess sem fyrir liggur höfnun á undanþágu vegna skilgreiningar byggingarreita frá Þingvallavatni og Grafningsvegi-Efri. Athugasemdir bárust frá Skipulagsstofnun og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn vísar til þess að fyrri auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins hafi verið felld úr gildi á 613. fundi sveitarstjórnar vegna annmarka á málsmeðferð og að málið sé því tekið til meðferðar að nýju. Sveitarstjórn hefur farið yfir framlögð gögn, þar á meðal þær athugasemdir sem komið hafa fram af hálfu Skipulagsstofnunar og þau uppfærðu gögn sem nú liggja fyrir. Sveitarstjórn telur rétt að afgreiða málið á nýjan leik á grundvelli fyrirliggjandi gagna og samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi eftir auglýsingu. Sveitarstjórn leggur áherslu á að með þessari afgreiðslu sé deiliskipulagstillagan tekin fyrir að nýju í samræmi við lögbundna málsmeðferð og með hliðsjón af þeim athugasemdum og þeim gögnum sem nú liggja fyrir í málinu. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að senda deiliskipulagstillöguna til Skipulagsstofnunar til yfirferðar samkvæmt 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 16; Álftavatn 7 L168312 í landi Ásgarðs; Skilmálabreyting; Deiliskipulagsbreyting - 2604014.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Álftavatns 7 L168312 í landi Ásgarðs í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst að hámarks stærð aukahúsa verður felld út.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins og málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Mál nr. 17; Tjaldafell skálasvæði; Skilgreining svæðis; Deiliskipulag - 2604012.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Tjaldafells skálasvæðis í Grímsnes- og Grafningshreppi. Lóðum er fjölgað og settir skilmálar fyrir hverja lóð, s.s. byggingarheimildir, nýtingarhlutfall lóða og fjöldi gesta. Gerð er grein fyrir fyrirkomulagi fráveitu. Lóðir eru á stærðarbilinu 5000 ? 7500 m2. Afmarkaðar eru tvær nýjar lóðir austan Tjaldafells, með heimild fyrir fleiri gestum í gistingu. Stærð skipulagssvæðis er um 15 ha. Samhliða er unnið að breytingu á aðalskipulagi og er deiliskipulagið í samræmi við það. Við gildistöku nýs deiliskipulags fellur eldra deiliskipulag úr gildi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggja fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Mál nr. 18; Nesjavallavirkjun L170925; Borun jarðhitaholu; Framkvæmdarleyfi - 2604003.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Nesjavallavirkjunar L170925 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í framkvæmdinni felst borun jarðhitaholu IDDP3 á Nesjavöllum.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu. Líkt og áður leggur sveitarstjórn ríka áherslu á að við frekari nýtingu jarðhitaauðlinda og annarra náttúruauðlinda innan marka sveitarfélagsins verði tryggt að nærsamfélagið njóti raunverulegs ávinnings af nýtingunni. Núverandi staða, þar sem nær öll orka sem unnin er innan sveitarfélagsins er flutt út af svæðinu án sambærilegs ávinnings fyrir heimabyggð, er ekki ásættanleg til framtíðar.
Mál nr. 19; Vaðnesvegur 2 L169743; Breytt hnit og stærð lóða; Deiliskipulagsbreyting - 2603089.
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Vaðnesveg 2, L169743, í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst leiðrétting á stærð lands og hnitsetningu þess.
Fyrir liggja skrifleg samþykki allra þeirra sem hagsmuna eiga að gæta og sæta grenndarkynningu, með áritun á kynningargögn, þar sem fram kemur að ekki séu gerðar athugasemdir við breytinguna. Með vísan til 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er því heimilt að stytta grenndarkynningartímabilið.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins og málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Mál nr. 20; Álfabyggð í landi Miðengis; Álfabyggð 8, 10, 12 og 42; Deiliskipulagsbreyting - 2603083.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Álfabyggðar í landi Miðengis í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst að byggingarreitir á lóðum nr. 8, 10, 12 og 42 verða samfelldir og staðsettir í 10 m fjarlægð frá lóðamörkum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins, með fyrirvara um umsögn Minjastofnunar Íslands. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Mál nr. 21; Klausturhólar 3 L168960; Staðfest mörk og stærð lóðar - 2604017.
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingum dags. 26.03.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar staðfestingu á afmörkun og stærð lóðarinnar Klausturhólar 3, L168960 í Grímsnes- og Grafningshrepp.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
Mál nr. 22; Krókur land L219678; Krókur 1; Staðfest heiti lóðar - 2604016.
Lögð er fram umsókn um nýtt heiti á staðfangi vegna Króks lands, L219678. Óskað eftir því að nýtt heiti jarðarinnar verði Krókur 1.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við staðfangið Krókur 1.
Mál nr. 31; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dagsett 27.03.2026 - nr. 26-247 - 2603003F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa þann 27. mars 2026, nr. 26-247.
Mál nr. 32; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dagsett 8. apríl 2026 - nr. 26-248 - 2603005F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa þann 8. apríl 2026, nr. 26-248.
2. Ársreikningur Grímsnes- og Grafningshrepps 2025 – fyrri umræða.
Ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2025 lagður fram til fyrri umræðu. Á fundinn mætti Ólafur Gestsson endurskoðandi PWC og fór yfir reikninginn. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikningnum til annarrar umræðu. Karen Huld Gunnarsdóttir deildarstjóri fjármála- og stjórnsýslu kom inn á fundinn undir þessum lið.

 Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl. 9:40.

Getum við bætt efni þessarar síðu?