Fara í efni

Sveitarstjórn

615. fundur 29. apríl 2026 kl. 10:00 - 11:35 Stjórnsýsluhúsinu Borg
Sveitarstjórn
  • Ása Valdís Árnadóttir oddviti
  • Björn Kristinn Pálmarsson
  • Dagný Davíðsdóttir
  • Ragnheiður Eggertsdóttir
  • Smári Bergmann Kolbeinsson
  • Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri var fjarverandi
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Ása Valdís Árnadóttir

Ása Valdís Árnadóttir oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.

1. Fundargerðir.
a) Fundargerð 10. fundar nefndar um skólahúsnæði Kerhólsskóla, 24. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

b) Fundargerð 11. fundar nefndar um skólahúsnæði Kerhólsskóla, 21. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

c) Fundargerð 12. verkfundar nefndar um byggingu slökkvistöðvar á Borg, 17. febrúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

d) Fundargerð 13. verkfundar nefndar um byggingu slökkvistöðvar á Borg, 3. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

e) Fundargerð 33. fundar Framkvæmda- og veitunefndar, 16. apríl 2026.
Lögð er fram 33. fundargerð Framkvæmda- og veitunefndar, dagsett 16. apríl 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 7 Minnisblað dags. 5.3.2025 um infrarauða panela í íþróttamiðstöð.
Fyrir liggur minnisblað dags. 5.3.2025 frá Agnari Þór Helgasyni forstöðumanni íþróttamiðstöðvarinnar og Óttari Guðlaugssyni heilsu- og tómstundafulltrúa um infrarauða panela í íþróttamiðstöð. Í minnisblaðinu kemur fram að búið sé að fá tilboð í infrarauða panela og er hagstæðasta verðið frá bandaríska framleiðandanum Heating Green.
Framkvæmda- og veitunefnd leggur til að keyptir verði hitapanelar frá Heating Green í samræmi við þá tillögu sem lögð er fram í minniblaðinu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Framkvæmda- og veitunefndar, en gert er ráð fyrir kaupum á infrarauðum panellum í gildandi fjárhagsáætlun ársins 2026.

f) Fundargerð stjórnarfundar Orkubús Vaðness ehf., 27. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

g) Fundargerð 134. fundar stjórnar byggðasamlags UTU, 9. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

h) Fundargerð 13. fundar Oddvitanefndar uppsveita Árnessýslu, 17. apríl 2026.
Lögð er fram 13. fundargerð Oddvitanefndar uppsveita Árnessýslu, dagsett 17. apríl 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 3 Lénið laugarás.is
Rætt var um lénið www.laugaras.is sem tengist jörðinni Laugarási. Fram kom að Bláskógabyggð er skráður greiðandi lénsins en Hrunamannahreppur er skráður tengiliður rétthafa. Oddvitanefndin telur eðlilegt að lénsheitið fylgi með kaupunum á jörðinni Laugarási. Oddvitanefndin leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna að samþykkja að lénið laugarás.is verði fært til Bláskógabyggðar og að Hrunamannahreppi verði falið að ganga frá breytingu á skráningu lénsins í samræmi við það.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að lénið laugarás.is verði fært til Bláskógabyggðar og að Hrunamannahreppi verði falið að ganga frá breytingu á skráningu lénsins í samræmi við það.

i) Fundargerð 92. fundar stjórnar Bergrisans bs., 23. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

j) Fundargerð 634. fundar stjórnar SASS, 6. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

k) Fundargerð 635. fundar stjórnar SASS, 10. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

l) Fundargerð 8. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands, 10. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2. Ársreikningur Grímsnes- og Grafningshrepps 2025 – síðari umræða.
Ársreikningur Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir árið 2025 endurspeglar áframhaldandi traustan rekstur og sterka fjárhagsstöðu.
Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 297,8 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða samantekinna reikningsskila sveitarfélagsins er einnig jákvæð að fjárhæð 325,6 milljónir króna og er afkoman því 148,2 milljónum króna betri en áætlun gerði ráð fyrir.
Veltufé frá rekstri var 405,2 milljónir króna árið 2025, eða 16,9% af heildartekjum, sem endurspeglar það svigrúm sem reksturinn gefur til að standa undir framkvæmdum og afborgunum lána. Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 443 milljónir króna og var hærra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Engin ný lán voru tekin á árinu en afborganir langtímalána námu 106,2 milljónum króna.
Heildarvelta sveitarfélagsins á árinu 2025, fyrir A- og B-hluta nam 2.397,1 milljón króna og var 414,1 milljón króna yfir áætlun. Skatttekjur sveitarfélagsins námu samtals 1.407,8 milljónum króna. Samtals námu rekstrartekjur A-hluta 2.118,1 milljón króna, en áætlun gerði ráð fyrir 1.697,7 milljónum króna. Skuldaviðmið A- og B-hluta sveitarfélagsins er 39,2% í árslok 2025 og er því vel undir lögbundnu hámarki sem er 150%. Samkvæmt áætlun með viðaukum var gert ráð fyrir að skuldaviðmið yrði 57,6% og er niðurstaðan því mun hagstæðari en gert var ráð fyrir.
Ársreikningur Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir árið 2025 er samþykktur samhljóða og undirritaður rafrænt af sveitarstjórn.
Karen Huld Gunnarsdóttir deildarstjóri fjármála- og stjórnsýslu sat fundinn undir þessum lið.

3. Sumarlokun skrifstofu Grímsnes- og Grafningshrepps 2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að skrifstofa Grímsnes- og Grafningshrepps verði lokuð vegna sumarleyfa starfsmanna frá 20. júlí til og með 7. ágúst 2026.

4. Gamla-Borg þinghús – nýting sem samfélags- og menningarhús.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að nýta eignina Gömlu-Borg þinghús á Borg, sem samfélags- og menningarhús í eigu sveitarfélagsins. Afhending eignarinnar er áætluð 5. júní nk. og stefnt er að því að hafa Gömlu-Borg opna þann 17. júní fyrir gesti og gangandi þar sem fólk getur skoðað húsakynnin. Markmið með eignarhaldi og rekstri hússins er að efla aðstöðu fyrir félags-, frístunda og menningarstarf í sveitarfélaginu og skapa vettvang fyrir fjölbreytta samfélagslega starfsemi í anda tillagna nefndar um frístunda- og menningarmál. Gamla-Borg verður nýtt sem samfélagsleg aðstaða í eigu sveitarfélagsins sem styður við:
-félagsstarf og samveru íbúa,
-frístunda- og menningarstarf barna, ungmenna og eldri borgara,
-fræðslu, fundi, námskeið og minni samfélagsviðburði,
-samstarfsverkefni sveitarfélagsins við félagasamtök og aðra aðila í sveitarfélaginu.
Húsið verður ekki rekið sem leiguhúsnæði á almennum markaði.

5. Umsókn í Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna stækkunar Bláskóga á Sólheimum.
Fyrir fundinum liggur svarbréf frá Innviðaráðuneytinu, dagsett 20. apríl 2026, málsnúmer IRN26010087, vegna umsóknar Sólheima ses. og Grímsnes- og Grafningshrepps um framlag úr Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til stækkunar á Bláskógum á Sólheimum að fjárhæð 22.108.546 kr.
Lagt fram til kynningar.

6. Verðmæta- og sýningarskápur fyrir Kvenfélag Grímsneshrepps.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps ákvað árið 2019, í tilefni af 100 ára afmæli Kvenfélags Grímsneshrepps, að færa félaginu gjöf. Ákvörðun um gjöfina var tekin í samráði við fulltrúa Kvenfélagsins, þar sem niðurstaðan var að gjöfin yrði verðmæta- og sýningarskápur fyrir muni félagsins. Í framhaldi af því hefur verið unnið að útfærslu gjafarinnar og var ákveðið að leita til Svansverks slf. um hönnun og smíði skápsins, í samræmi við þarfir félagsins og liggur fyrir minnisblað um verkefnið.
Sveitarstjórn fagnar því að málið sé nú komið í farveg og að smíði skápsins sé hafin. Skápurinn verður í kjölfarið afhentur Kvenfélagi Grímsneshrepps sem gjöf sveitarfélagsins í tilefni af 100 ára afmæli félagsins.

7. Neðra-Apavatn L168269; Sauðhólsvegur 6; Sauðhólsvegur 8 (áður Neðra-Apavatn lóð) L169306; Stofnun og breytt stærð og staðfang lóða – 2107045.
Málinu var frestað á 611. fundi sveitarstjórnar og er það nú tekið fyrir að nýju. Vísað er til afgreiðslu 510. fundar sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafninghrepps þar sem sveitarstjórn gerði ekki athugasemd við stofnun lóða og lagði áherslu á að staðföng viðkomandi lóða yrðu samræmd í samræmi við reglugerð um skráningu staðfanga. Lögð eru fram ný gögn í málinu.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við stofnun Sauðhólsvegs 4 og felur Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs. að vinna að staðfangabreytingum á og við Sauðhólsveg í samræmi við framangreint.

8. Úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. UUA2512012.
Lagður fram til kynningar úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2512012. Nefndin hafnaði kröfu kæranda um ógildingu gjaldtöku vegna aukalosunar rotþróar.

9. Aukaaðalfundarboð Samtaka orkusveitarfélaga.
Fyrir liggur fundarboð á aukaaðalfund Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður í dag þann 29. apríl klukkan 16:00 í fjarfundabúnaði.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að tilnefna Björn Kristinn Pálmarsson sem sinn fulltrúa með atkvæðisrétt og Ásu Valdísi Árnadóttur til vara.

10. Ársfundur Brákar íbúðafélag hses.
Fyrir fundinum liggur fundarboð Brákar íbúðafélags hses. þar sem boðað er til ársfundar. Fundurinn var haldinn 28. apríl 2026.
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða að Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, sveitarstjóri hafi verið fulltrúi Grímsnes- og Grafningshrepps á fundinum.

11. Aðalfundarboð Landskerfis bókasafna hf. vegna rekstarárs 2025.
Fyrir liggur að aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. verður haldinn þann 12. maí 2026 klukkan 14:00. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að Ragna Björnsdóttir verði fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum.

12. Boð á aðalfund Rangárbakka, þjóðaleikvangs íslenska hestsins ehf.
Fyrir liggur boð á aðalfund Rangárbakka, þjóðarleikvangs íslenska hestsins ehf.
Lagt fram til kynningar.

13. Ársreikningur Orkubús Vaðnes ehf. 2025.
Lagður fram til kynningar ársreikningur Orkubús Vaðnes ehf. fyrir árið 2025.

14. Ársreikningur og ársskýrsla Hjálparsveitarinnar Tintron 2025.
Lögð fram til kynningar ársskýrsla og ársreikningur Hjálparsveitarinnar Tintron fyrir árið 2025.

15. Ársreikningur Brákar íbúðafélags hses. 2025.
Lagður fram til kynningar ársreikningur Brákar íbúðafélags hses. fyrir árið 2025.

16. Úti- og bæjarhátíðir á Suðurlandi – Greining á skipulagi og framkvæmd með tillögum að forvörnum frá Öruggara Suðurland.
Lögð fram til kynningar greining á skipulagi og framkvæmd úti- og bæjarhátíða á Suðurlandi ásamt tillögum að forvörnum.
Sveitarstjórn þakkar fyrir skýrsluna og felur sveitarstjóra að taka tillögur hennar til skoðunar og koma þeim, eftir því sem við á, til viðeigandi aðila innan sveitarfélagsins.

17. Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna.
Lagt fram til kynningar erindi Umboðsmanns barna, dagsett 13. apríl 2026, varðandi sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðislega þátttöku barna.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að efla lýðræðislega þátttöku barna og ungmenna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2026 og felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir í samstarfi við viðeigandi aðila.

18. Umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur), þskj. 955 – 565. Mál.
Lögð fram til kynningar umsögn Samtaka Orkusveitarfélaga um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur), þskj. 955 – 565. mál.

19. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, Nordic Comfort Homes að Engjabrekku 7, fnr. F2345124.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, Nordic Comfort Homes að Engjabrekku 7, fnr. F2345124.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II til Nordic Comfort Homes að Engjabrekku 7, fnr. F2345124 í Grímsnes- og Grafningshreppi með fyrirvara um jákvæða umsögn byggingarfulltrúa.

Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl. 11:35

Skjöl

Getum við bætt efni þessarar síðu?