Fara í efni

Sveitarstjórn

622. fundur 16. september 2026 kl. 14:00 - 15:24 Stjórnsýsluhúsinu Borg
Sveitarstjórn
  • Guðmundur Finnbogason
  • Rebekka Lind Guðmundsdóttir
  • Andrés Bertelsen
  • Bergur Guðmundsson
  • Ragnheiður Eggertsdóttir
  • Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Fjóla Steindóra Kristinsdóttir.

Guðmundur Finnbogason, oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.
1. Fundargerðir.
a) Fundargerð 332. fundar skipulagsnefndar UTU, 9. september 2026.
Mál nr. 12, 13 og 14 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 332. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 9. september 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 12; Bíldsfell 3E lóð 1 L219971; Úr frístundabyggð í landbúnaðarland; Aðalskipulagsbreyting - 2510086
Lögð er fram að nýju skipulagslýsing sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Svæðið sem breytingin nær til er Bíldsfell 3 E lóð 1 L219971. Í breytingunni felst að lóðinni er breytt úr frístundabyggð í landbúnaðarsvæði.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar UTU og samþykkir skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 13; Neðan-Sogsvegar 44D L174063; Leyfi fyrir gistingu, skilmálabreyting; Deiliskipulagsbreyting – 2608079
Lögð er fram umsókn sem tekur til Neðan-Sogsvegar 44D L174063 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst að heimilt verði að reka gistingu í flokki I og II samkvæmt reglugerð nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, þar sem um er að ræða heimagistingu eða útleigu frístundahúss utan þéttbýlis.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar UTU og synjar erindinu þar sem skilyrðum aðalskipulags, er varða að enginn lóðarhafi innan deiliskipulagssvæðisins leggist gegn starfseminni, er ekki fullnægt.
Mál nr. 14; Stóri-Háls L170827; Úr landbúnaðarsvæði í skógræktarsvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2601057
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingu, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Með breytingunni verður sett inn nýtt skógræktar- og landgræðslusvæði á Stóra-Hálsi (L170827) og heimiluð skógrækt á allt að 100 ha. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum. Einnig bárust athugasemdir frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun sem eru lagðar fram við afgreiðslu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020–2032 í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og samþykkir jafnframt að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. sömu laga.
b) Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa, dags. 9. september 2026, nr. 26-262.
c) Fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 28. ágúst 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
d) Fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga 21. ágúst 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
e) Fundargerð 93. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 27. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
f) Fundargerð 94. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 18. júní 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
g) Fundargerð 95. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 7. ágúst 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
h) Fundargerð 96. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 21. ágúst 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2. Úrskurður nr. 3/2026 frá yfirfasteignamatsnefnd.
Lagður er fram til kynningar úrskurður í máli nr. 3/2026.
3. Erindi frá Mílu hf. – ósk um lóð fyrir fjarskiptamastur.
Fyrir liggur erindi frá Mílu hf., dagsett 28. ágúst 2026, þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið úthluti félaginu um 100 m² lóð, 10 x 10 m, úr lóðinni Þinggerði 1, L215450, vegna uppsetningar á fjarskiptamastri og tilheyrandi búnaði. Míla telur staðsetninguna henta vel vegna nálægðar við fyrirhugaða björgunarmiðstöð og þá innviði sem þar verða til staðar. Óskað er eftir að sveitarstjórn taki erindið til skoðunar og að stofnuð verði ný lóð undir mannvirkið, en endanleg staðsetning verði ákveðin í samráði við sveitarfélagið.
Sveitarstjórn felur deildarstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að vinna málið áfram, þar á meðal að kynna fyrirhugaða staðsetningu fyrir aðliggjandi lóðarhöfum, áður en tekin verður endanleg afstaða til lóðarúthlutunar.
4. Fjárhagsáætlun 2027 og 2028-2029.
Deildarstjóri fjármála kemur inn á fundinn og fer yfir undirbúning fjárhagsáætlunar 2027 og þriggja ára áætlunar 2028–2029. Farið er yfir þá vinnu sem fram undan er, fyrirhugaða vinnufundi og helstu tímasetningar í ferlinu. Vinna við gerð launaáætlunar er hafin og fram undan er yfirferð á forsendum, tekjum og útgjöldum einstakra deilda og málaflokka.
5. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Lautarbrekku 14, 805 Selfossi, fnr. F2345111.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 2. september 2026 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Lautarbrekku 14, 805 Selfossi, fnr. F2345111.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II, H frístundahús að Lautarbrekku 14, 805 Selfossi, fnr. F2345111.
6. Verkefni byggðaþróunarfulltrúa.
Rakel Theódórsdóttir, byggðaþróunarfulltrúi Uppsveita Árnessýslu 2025–2027, kemur inn á fundinn og kynnir verkefnin sem fram undan eru.
7. Skjálftinn, hæfileikakeppni ungmenna.
Lagt fram til kynningar erindi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, dagsett 9. september 2026, er varðar Skjálftann, hæfileikakeppni ungmenna, sem er áhersluverkefni SASS.
8. 6. áfangi rammaáætlunar.
Lögð er fram til kynningar tilkynning, dagsett 9. september 2026, um að tillaga um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði hafi verið birt í samráðsgátt stjórnvalda sbr. lög nr. 48/2011.
9. Notendaráð sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dagsett 8. september 2026, er varðar notendaráð sveitarfélaga.
10. Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dagsett 1. september 2026, er varðar útfærslu á stefnumörkun Sambandsins til næstu fjögurra ára.


Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið klukkan: 15:24

Getum við bætt efni þessarar síðu?