Fara í efni

Sveitarstjórn

625. fundur 04. nóvember 2026 kl. 14:00 - 15:19 Stjórnsýsluhúsinu Borg
Sveitarstjórn
  • Guðmundur Finnbogason
  • Pétur Thomsen í fjarveru Rebekku Lindar Guðmundsdóttur
  • Andrés Bertelsen
  • Bergur Guðmundsson
  • Ragnheiður Eggertsdóttir
Starfsmenn
  • Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Fjóla Steindóra Kristinsdóttir.

Guðmundur Finnbogason, oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við
fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.

1. Fundargerðir.
a) Fundargerð 11. fundar loftslags- og umhverfisnefndar, 22. október 2026.
Mál nr. 2 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 2; Fjárhagsáætlun 2027
Fyrir liggur ósk frá framkvæmda- og veitunefnd um tillögur að fjárfestingum vegna vinnu við
fjárhagsáætlun. Nefndin ræddi um mögulegar framkvæmdir og fjárfestingar á sviði umhverfismála og
leggur til tvær tillögur sem eru nánar útskýrðar í fylgiskjali, annars vegar gerð yfirlitskorts og hins
vegar hönnun og gerð göngustíga o.fl. við Kerhól.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa tillögum loftslags- og umhverfisnefndar að fjárfestingum
fyrir árið 2027 til framkvæmda- og veitunefndar til umfjöllunar.
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
b) Fundargerð 12. fundar loftslags- og umhverfisnefndar, 29. október 2026.
Mál nr. 1 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 1; Klausturhólar gjallnámur L168965; Efnistaka í Seyðishólum náma E24; Framkvæmdarleyfi – 2506103
Þann 21. október s.l. bókaði sveitarstjórn um að máli er varðar útgáfu framkvæmdaleyfis vegna námu
E24 í Seyðishólum yrði vísað til efnislegrar umfjöllunar hjá loftlags- og umhverfisnefnd Grímsnes- og
Grafningshrepps.
Starfsmaður nefndarinnar fór yfir forsögu málsins og lagði fram þau gögn sem fyrir liggja í málinu.
Loftslags- og umhverfisnefnd telur að umsókn um framkvæmdaleyfi uppfylli þau skilyrði sem sett eru
vegna efnistöku á svæði E24, Seyðishólum. Jafnframt telur nefndin að brugðist hafi verið með
fullnægjandi hætti við þeim athugasemdum sem fram hafa komið vegna málsins og tillit tekið til þeirra
röksemda sem úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála byggðist á.
Nefndin tekur undir það mat að áframhaldandi efnistaka muni hafa óafturkræf áhrif á jarðmyndun
sem nýtur sérstakrar verndar samkvæmt náttúruverndarlögum. Nefndin telur þó að brýn nauðsyn
framkvæmdarinnar felist meðal annars í því að nýta þegar raskað efnistökusvæði til að mæta þörf fyrir
jarðefni til framkvæmda, fremur en að hefja efnistöku á nýjum og óröskuðum svæðum. Þar að auki
telur nefndin jákvætt að efnistaka fyrir sveitafélagið og nágrenni eigi sér stað í nærumhverfi og krefjist
ekki orkufrekra flutninga. Þá telur nefndin sérstaklega mikilvægt að með framkvæmdaleyfinu verði
tryggður skipulagður frágangur og endanleg lokun námunnar að efnistöku lokinni, sem svarar brýnni
nauðsyn á vernd þeirra jarðminja sem málið varðar. Slíkur frágangur er nauðsynlegur með tilliti til
öryggis og ásýndar svæðisins og mikilvægt að skýrar kröfur séu gerðar um framkvæmd hans.
Bókun Ö-listans;
Undirritaður lýsir sig mótfallinn útgáfu framkvæmdaleyfis vegna efnistöku í Seyðishólum (náma E24)
Seyðishólar eru eldvörp sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt a-lið 2. mgr. 61. gr. laga nr. 60/2013
um náttúruvernd. Samkvæmt 3. mgr. sömu lagagreinar ber fortakslaust að forðast að raska slíkum
jarðminjum nema brýna nauðsyn beri til. Með vísan til lögskýringargagna að baki ákvæðinu er
skilyrðið um brýna nauðsyn afar þröngt; sýnt verður fram á að mjög ríkir hagsmunir séu í húfi og þá
fyrst og fremst brýnir almannahagsmunir.
Sveitarfélaginu hefur algerlega mistekist fram að þessu að færa viðhlítandi rök fyrir því að þetta
stranga lagaskilyrði sé uppfyllt í þessu máli. Fyrirhugað er að stór hluti eða jafnvel meirihluti þess
efnis sem á að vinna sé ætlaður til útflutnings úr landi. Einkahagsmunir og áform um útflutning geta
á engan hátt talist til brýnna almannahagsmuna sem réttlætt geta óafturkræf spjöll á friðlýstum
náttúrumyndunum.
Sveitarstjórn verður jafnframt að líta til þess að Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur
þegar í tvígang fellt úr gildi framkvæmdaleyfi vegna fyrst með úrskurði nr. 98/2023 og síðar nr.
151/2024, vegna verulegra ágalla á málsmeðferð og skorts á lögmætum rökstuðningi varðandi einmitt
61. gr. náttúruverndarlaga. Að knýja fram leyfisveitingu á nýjan leik, án þess að sýnt hafi verið fram
á raunverulega almannahagsmuni eða brýna nauðsyn, fer í bága við tilgang náttúruverndarlaga og
rannsóknarskyldu stjórnsýslunnar.
Það er grundvallarmisskilningur á lögum um náttúruvernd að fyrra rask réttlæti áframhaldandi
eyðileggingu. Úrskurðarnefndin tók það skýrt fram í úrskurði sínum að þótt svæðinu hafi þegar verið
raskað, undanskilur það Seyðishóla ekki þeirri sérstöku vernd sem eldvörp njóta skv. 61. gr. laga nr.
60/2013. Sérhver ný skóflustunga inn og niður í gíginn gerir sárin dýpri og endanlegan lokafrágang
mun erfiðari. Undirritaður leggur til að sveitarstjórn sýni ábyrgð, virði fyrri úrskurði og lögboðna náttúruvernd
með því að stíga fast til jarðar og hafna þessari tillögu.
Tillaga fulltrúa Ö-lista var borin undir atkvæði og felld með fjórum atkvæðum fulltrúa A-lista gegn
einu atkvæði fulltrúa Ö-lista.
Sveitarstjórn samþykkir útgáfu framkvæmdarleyfis vegna efnistöku í Seyðishólum, námu E24, í
samræmi við fyrirliggjandi gögn og skilyrði leyfisins með fjórum atkvæðum fulltrúa A-lista gegn einu
atkvæði fulltrúa Ö-lista.
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
c) Fundargerð 37. fundar framkvæmda- og veitunefndar, 13. október 2026.
Mál nr. 3, 7 og 8 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 3; Erindisbréf Framkvæmda- og veitunefndar.
Lögð er fram tillaga að uppfærðu erindisbréfi Framkvæmda- og veitunefndar. Lagt til að hlutverk
framkvæmda- og veitunefndar sem húsnæðisnefnd verði bætt inn í erindisbréf og það lagt fyrir
sveitarstjórn. Formanni falið að vinna málið áfram.
Fyrir liggur uppfært erindisbréf framkvæmda- og veitunefndar þar sem hlutverki nefndarinnar sem
húsnæðisnefndar hefur verið bætt við.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi erindisbréf. Sveitarstjóra falið að uppfæra
erindisbréfið.
Mál nr. 7; Sláttur á Borg.
Fyrir liggur að samningur vegna slátturs á Borg er runninn út. Framkvæmda- og veitunefnd leggur til
við sveitarstjórn að heimild til framlengingar um eitt ár verði nýtt.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að nýta heimild til eins árs framlengingar á samningi vegna
slátturs á Borg. Jafnframt felur sveitarstjórn Fjólu Steindóru Kristinsdóttur sveitarstjóra að undirrita
samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Mál nr. 8; Vegstyrkir.
Fyrir liggja 24 gildar umsóknir um styrki vegna veghalds í frístundabyggðum. Nefndin fjallaði um
umsóknirnar og lagði mat á þær með hliðsjón af gildandi reglum um styrki vegna veghalds í
frístundabyggðum í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða úthlutun styrkja vegna veghalds í frístundabyggðum samkvæmt
töflu í 8. lið fundargerðar nefndarinnar.
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
d) Fundargerð 335. fundar skipulagsnefndar UTU, 28. október 2026.
Mál nr. 12, 13, 14, 15, 16, 17, 18, 19 og 20 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 335. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 28. október 2026. Eftirfarandi
dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar
Mál nr. 12; Hólmasund 2 L168670; Skilmálar um byggingarmagn; Fyrirspurn – 2610032.
Lögð er fram fyrirspurn vegna sumarhúss að Hólmasundi 2 í frístundabyggðinni Hraunborgum í
Grímsnes- og Grafningshreppi. Fyrirspurnin varðar heimildir til að hafa 15 m² smáhýsi á lóðinni til
viðbótar við 59 m² sumarhús og 7 m² geymslu, auk þess hvort sækja þurfi um byggingarleyfi fyrir
smáhýsið. Óskað er eftir skýringu á túlkun deiliskipulagsskilmála um fjölda og tegund aukahúsa á lóð,
þar sem orðalag skilmála um heimild fyrir gestahúsi og geymslu er ekki samræmt.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að synja erindinu þar sem ekki er sýnt fram á að fyrirhugað
smáhýsi samræmist gildandi deiliskipulagsskilmálum.
Mál nr. 13; Villingavatn L170831; Skógrækt; Framkvæmdarleyfi – 2610031
Lögð er fram umsókn Heartwood Afforested Land ehf. um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar á
Villingavatni, L170831, í Grímsnes- og Grafningshreppi. Umsóknin tekur til um 855 ha svæðis sunnan
Grafningsvegar og er framhald fyrri áfanga skógræktarframkvæmda á jörðinni, en framkvæmdaleyfi
vegna allt að 200 ha svæðis var gefið út 24. júní 2026. Fyrirhuguð skógrækt er innan skógræktar- og
landgræðslusvæðis SL18 samkvæmt gildandi aðalskipulagi. Framkvæmdin felur í sér
fjölnytjaskógrækt, meðal annars með alaskaösp, sitkagreni, lerki, furu og birki, auk gerðar vinnuslóða
innan framkvæmdasvæðisins. Framkvæmdin byggir á fyrirliggjandi umhverfismati og áliti HMS um
umhverfismatið.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða útgáfu framkvæmdaleyfis vegna skógræktar á Villingavatni
L170831 á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 14; Lyngborgir 3 L228957; Hærri mænishæð; Fyrirspurn – 2610024
Lögð er fram fyrirspurn vegna fyrirhugaðs flutnings húss á lóðina Lyngborgir 3. Húsið er 6,5 m hátt
og 52 m² að flatarmáli, með tveimur svefnherbergjum.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er húsið um 6,5 m að hæð, en samkvæmt gildandi deiliskipulagi má
mænishæð húsa frá jörðu ekki vera meiri en 6,0 m. Fyrirhuguð framkvæmd er því ekki í samræmi við
gildandi deiliskipulag og skipulagsnefnd getur ekki tekið jákvætt í erindið á þeim grundvelli sem það
liggur fyrir.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að ekki sé unnt að taka jákvætt í erindið eins og það liggur fyrir,
þar sem fyrirhuguð mænishæð hússins er umfram heimildir gildandi deiliskipulags.
Mál nr. 15; Álftavatn 7 L168312 í landi Ásgarðs; Skilmálabreyting; Deiliskipulagsbreyting – 2604014
Lögð er fram umsókn, að lokinni grenndarkynningu, um breytingu á skilmálum deiliskipulags
frístundabyggðar í landi Ásgarðs L168312 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Breytingin felur í sér að
ákvæði um hámarksstærð aukahúsa verði fellt út. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu og eru
þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Brugðist hefur verið við framkomnum ábendingum og athugasemdum með breytingum á tillögunni
eftir því sem tilefni hefur þótt til. Uppfærð tillaga var grendarkynnt aftur.
Fyrir liggur uppfærð tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulagsins ásamt samantekt umsagna og
athugasemda og viðbrögðum úr báðum grendarkynningunum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að synja erindinu á grundvelli þeirra athugasemda sem bárust við
grenndarkynningar málsins.
Mál nr. 16; Reykjalundur L168273; Skilgreining svæðis; Deiliskipulag – 2601048
Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi að lokinni auglýsingu skv. 41. gr. skipulagslaga. Á
auglýsingatíma bárust umsagnir frá umsagnaraðilum ásamt athugasemdum frá hagsmunaaðilum og
nágrönnum. Skipulagsfulltrúi fundaði í kjölfarið með þeim aðilum sem sendu inn athugasemdir til að
fara yfir efni þeirra og sjónarmið.
Skipulagsfulltrúi og verkefnisstjóri fóru jafnframt í vettvangsferð á svæðið til að kynna sér staðhætti
og aðstæður á vettvangi. Þar mætti fulltrúi þeirra sem höfðu gert athugasemdir við tillöguna og kynnti
sjónarmið sín.
Í kjölfar yfirferðar umsagna, athugasemda og vettvangsskoðunar hefur deiliskipulagstillagan verið
endurskoðuð og uppfærð. Brugðist hefur verið við framkomnum ábendingum og athugasemdum með
breytingum á tillögunni eftir því sem tilefni hefur þótt til.
Fyrir liggur uppfærð deiliskipulagstillaga ásamt samantekt og viðbrögðum við umsögnum og
athugasemdum til umfjöllunar og afgreiðslu nefndarinnar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að
brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna.
Sveitarstjórn samþykkir að senda deiliskipulagið til HMS til yfirferðar samkvæmt 42. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010 og að það taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð
HMS.
Mál nr. 17; Álfabyggð 11 L234151; Rekstrarleyfi í Fl.2; Deiliskipulagsbreyting – 2610048
Lögð er fram umsókn um gistileyfi í flokki II fyrir húsnæði sem er í byggingu. Umsækjandi hyggst ljúka
framkvæmdum og sækja um tilskilið leyfi áður en húsnæðið verður tekið í útleigu.
Sveitarstjórn samþykkir að synja erindinu þar sem það er hvorki í samræmi við gildandi Aðalskipulag
Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 né gildandi deiliskipulag svæðisins.
Mál nr. 18; Álfhóll L210521; Skógræktar- og landgræðslusvæði í verslun- og þjónustu;
Fyrirspurn – 2610045
Lögð er fram fyrirspurn eigenda Álfhóls, L210521, í Grímsnes- og Grafningshreppi, um breytingu á
Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Fyrirhugað er að skilgreina um 9,2 ha svæði
innan núverandi skógræktar- og landgræðslusvæðis SL15 sem verslunar- og þjónustusvæði fyrir
gistiþjónustu, samhliða því að skógrækt verði áfram heimil. Gert er ráð fyrir léttum, færanlegum
gistieiningum innan skógarins ásamt þjónustubyggingum, með allt að 56 gistieiningum þegar
uppbyggingu er að fullu lokið. Jafnframt er óskað leiðbeininga um flokkun landnotkunar, umfang og
málsmeðferð aðalskipulagsbreytingarinnar og meðferð gistieininganna samkvæmt skipulags- og
byggingarreglum. Unnið yrði nýtt deiliskipulag samhliða aðalskipulagsbreytingunni.
Skipulagsnefnd UTU tekur jákvætt í fyrirspurn um breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og
Grafningshrepps vegna Álfhóls, L210521, þar sem fyrirhugað er að breyta um 9,2 ha svæði úr
skógræktar- og landgræðslusvæði í verslunar- og þjónustusvæði fyrir gistihúsnæði.
Nefndin bendir á að nýlega hefur verið staðfest breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem
ákvæði um skógrækt hafa verið endurskoðuð. Telur nefndin þó mikilvægt að fyrirhuguð breyting á
landnotkun verði metin sérstaklega með hliðsjón af stefnu aðalskipulags, náttúrufari, landslagi,
innviðum og áhrifum fyrirhugaðrar uppbyggingar.
Sveitarstjórn tekur jákvætt í fyrirspurnina og samþykkir að unnin verði skipulagslýsing og tillaga að
breytingu á aðalskipulagi vegna Álfhóls L210521 í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Við vinnsluna verði fyrirhuguð breyting á landnotkun metin sérstaklega með hliðsjón af stefnu
aðalskipulags, náttúrufari, landslagi, innviðum og áhrifum fyrirhugaðrar uppbyggingar.
Mál nr. 19; Tjaldafell fjallaríki L175568; Fjölgun lóða, auka byggingarheimildir og gistirými;
Aðalskipulagsbreyting – 2511039
Lögð eru fram uppfærð gögn vegna breytingar á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-
2032 og nýs deiliskipulags fyrir skálasvæðið við Tjaldafell norðaustan Skjaldbreiðar L175568, í
kjölfar umsagnar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar við staðfestingarferli skipulagsins.
Gerðar hafa verið breytingar á skipulagsgögnum og eru uppfærð gögn lögð fram til afgreiðslu. Fjölda
gesta er fækkað úr 265 í 190. Fjöldi gesta á minn lóðunum verður 10 í stað 15. Fjöldi gesta á stærri
lóðum verður 40 í stað 50. Með þessu er dregið úr umfangi mannvirkja og áhrifum af fjölda gesta á
svæðinu hverju sinni.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framangreindar breytingar á
skipulagsgögnum vegna Tjaldafells fjallaríkis L175568. Hámarksfjöldi gesta í gistingu samkvæmt
aðalskipulagi verður 190 og samkvæmt deiliskipulagi 180. Sveitarstjórn telur að með breytingunum
sé framkvæmdin undir viðmiðunarmörkum liðar 12.04 í 1. viðauka laga nr. 111/2021 hvað varðar
fjölda gesta og því ekki þörf á að óska eftir ákvörðun HMS um matsskyldu framkvæmdarinnar.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að óskað verði eftir því við Húsnæðis-, mannvirkja- og
skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild
Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 20; Tjaldafell skálasvæði; Skilgreining svæðis; Deiliskipulag - 2604012
Lögð eru fram uppfærð deiliskipulagsgögn fyrir skálasvæðið við Tjaldafell norðaustan Skjaldbreiðar
L175568 í kjölfar umsagnar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar við staðfestingarferli
samhliða aðalskipulagsbreytingar svæðisins.
Fjölda gesta á minni lóðunum er fækkað úr 15 í 10. Fjölda gesta á stærri lóðunum er fækkað úr 50 í
40. Heildarfjöldi gesta er 180.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða deiliskipulagið eftir
framangreindar breytingar. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að deiliskipulagið taki gildi með
birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
e) Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-268, 21. október 2026.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-268.
f) Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-269, 28. október 2026.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-269.
g) Fundargerð 4. fundar stjórnar byggðasamlags UTU, 28. október 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar
h) Fundargerð aðalfundar Brunavarna Árnessýslu bs., 29. september 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar
i) Fundargerð aðalfundar Byggðasafns Árnesinga bs., 29. september 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar
j) Fundargerð aðalfundar Listasafns Árnesinga bs., 29. september 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar
k) Fundargerð aðalfundar Tónlistarskóla Árnesinga bs., 29. september 2026, ásamt fjárhagsáætlun
fyrir árið 2027.
Fundargerðin og fjárhagsáætlunin lagðar fram til kynningar.
l) Fundargerð 639. fundar stjórnar SASS, 2. október 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar

2. Niðurstaða útboðs – Kerhólsskóli, breytingar á 2. hæð og ný loftræsisamstæða.
Fyrir liggur minnisblað Steinars Sigurjónssonar, deildarstjóra framkvæmda, mannvirkja og umhverfis,
dagsett 29. október 2026, um niðurstöðu útboðs í verkið „Kerhólsskóli – Breytingar 2. hæð og ný
loftræsisamstæða“. Opnun tilboða fór fram 16. október 2026.

Tilboðsaðili

Tilboðsupphæð

Probygg ehf.

96.149.752 kr.

E. Sigurðsson ehf.

99.093.796 kr.

Tindhagur ehf.

108.443.508 kr.

Verkeining ehf.

108.598.778 kr.

K16

109.586.960 kr.

All Verk ehf.

112.136.053 kr.

Alefli ehf.

113.698.716 kr.

Borg byggingalausnir ehf.

116.384.695 kr.

HR Smíði

123.288.867 kr.

Vörðufell

129.983.457 kr.

Atlas verktakar ehf.

134.184.596 kr.

Kostnaðaráætlun EFLU

112.799.000 kr.


Fram kemur í minnisblaðinu að tilboð hafi verið yfirfarin með tilliti til hæfis, útilokunarástæðna og
útreikninga í tilboðsskrá. Lægstbjóðandi, Probygg ehf., uppfyllir kröfur útboðsgagna og hæfismat. Lagt
er til að tilboði félagsins verði tekið.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að taka tilboði Probygg ehf. að fjárhæð
96.149.752 kr. með VSK í verkið „Kerhólsskóli – Breytingar 2. hæð og ný loftræsisamstæða“. Jafnframt
felur sveitarstjórn Fjólu Steindóru Kristinsdóttur sveitarstjóra að undirrita verksamninginn fyrir hönd
Grímsnes- og Grafningshrepps.

3. Gjaldskrá hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps 2027 – síðari umræða.
Lögð fram til síðari umræðu tillaga að gjaldskrá Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir árið 2027.
Fyrri umræða fór fram á 624. fundi sveitarstjórnar þann 21. október 2026.
Tillagan felur í sér almenna hækkun gjaldskrár um 2,5%, mánaðarlega innheimtu hitaveitugjalda í stað
innheimtu á þriggja mánaða fresti og að ekki verði beitt frekari vísitöluhækkunum á árinu 2027.
Breytingarnar taki gildi 1. janúar 2027.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir árið 2027 og
breytt innheimtufyrirkomulag í samræmi við fyrirliggjandi tillögu, með fyrirhugaðri gildistöku 1. janúar
2027. Jafnframt felur sveitarstjórn deildarstjóra veitna að annast umsókn um staðfestingu gjaldskrárinnar
og fylgja eftir birtingu hennar í B-deild Stjórnartíðinda.

4. Endurskoðun húsnæðisáætlunar fyrir árið 2027.
Fyrir liggur tölvupóstur frá HMS, dagsettur 29. október 2026, um endurskoðun húsnæðisáætlana fyrir
árið 2027. Samkvæmt erindinu skulu sveitarstjórnir hafa staðfest endurskoðaða húsnæðisáætlun eigi síðar
en 20. janúar 2027.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela framkvæmda- og veitunefnd að fjalla um endurskoðun
húsnæðisáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Að lokinni umfjöllun nefndarinnar verði sveitarstjóra,
deildarstjóra veitna og deildarstjóra framkvæmda, mannvirkja og umhverfis falið að fullvinna áætlunina
og leggja hana fyrir sveitarstjórn til staðfestingar.

5. Umsókn IMIROX Capital ehf. um endurúthlutun lóða við Hraunbraut 5–7 og 9–11 á Borg.
Fyrir liggur erindi IMIROX Capital ehf., dagsett 21. október 2026, ásamt umsóknarblöðum og
fylgigögnum, þar sem óskað er eftir endurúthlutun lóðanna Hraunbrautar 5–7 og 9–11 á Borg. Jafnframt
er óskað eftir tólf mánaða framkvæmdafresti frá úthlutun til uppsteypu sökkla og að lóðar- og
gatnagerðargjöld miðist við upphaflega úthlutun árið 2022, með vísitöluhækkun.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra og lögmanni sveitarfélagsins að fara yfir málið
og í kjölfarið funda með forsvarsmönnum IMIROX Capital ehf. Málið verði að lokinni þeirri vinnu lagt
að nýju fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.
6. Bréf innviðaráðuneytisins vegna stjórnsýslu sveitarfélagsins í skipulagsmálum frístundabyggða –
IRN26010031.
Fyrir liggur bréf innviðaráðuneytisins, dagsett 16. október 2026, vegna erindis Búsetufrelsis um samþykkt
sveitarstjórnar frá 26. nóvember 2025 varðandi skipulagsmál frístundabyggða. Ráðuneytið áréttar að
sveitarstjórn beri að taka afstöðu til einstakra umsókna og leggja sjálfstætt mat á hvert mál á grundvelli
viðeigandi ákvæða skipulagslaga, gildandi skipulagsáætlana og málefnalegra sjónarmiða.
Sveitarstjórn tekur bréf ráðuneytisins til kynningar. Samþykkt fyrri sveitarstjórnar frá 26. nóvember 2025,
sem erindið varðar, er fallin úr gildi. Einstök erindi verða tekin til sjálfstæðrar umfjöllunar og afgreiðslu
í samræmi við gildandi lög og skipulagsáætlanir.

7. Öruggara Suðurland – áframhaldandi samstarf.
Fyrir liggur erindi frá lögreglustjóranum á Suðurlandi, dagsett 23. október 2026, um áframhaldandi
samstarf á vettvangi Öruggara Suðurlands og undirritun nýrrar samstarfsyfirlýsingar. Sveitarstjóri
undirritaði yfirlýsinguna fyrir hönd sveitarfélagsins á ársþingi SASS þann 30. október 2026.
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða undirritun Fjólu Steindóru Kristinsdóttur sveitarstjóra á
samstarfsyfirlýsingu um Öruggara Suðurland fyrir hönd Grímsnes- og Grafningshrepps.

8. Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna könnunar umhverfis-, orku- og
loftslagsráðuneytisins um kolefnisstjórnunarverkefni.
Lagt fram til kynningar erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dagsett 19. október 2026, vegna
könnunar umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um kolefnisstjórnunarverkefni. Sveitarstjóri hefur
þegar svarað könnuninni fyrir hönd sveitarfélagsins.

9. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 218/2026, grænbók um
landgræðslu og skógrækt.
Fyrir liggur tilkynning úr samráðsgátt, dagsett 23. október 2026, um grænbók um landgræðslu og
skógrækt.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa málinu til loftslags- og umhverfisnefndar til umfjöllunar og
felur nefndinni að leggja tillögu að umsögn fyrir sveitarstjórn áður en umsagnarfrestur rennur út.

10. Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 212/2026, „Greiðslur til sveitarfélaga vegna
kosninga“.
Lögð fram til kynningar tilkynning frá dómsmálaráðuneytinu um samráð vegna máls nr. 212/2026,
„Greiðslur til sveitarfélaga vegna kosninga“.

11. Menningarverðlaun Suðurlands 2026 – Leikfélag Sólheima.
Lagt fram til kynningar að Leikfélag Sólheima hlaut Menningarverðlaun Suðurlands 2026. Verðlaunin
voru afhent 29. október 2026 í tengslum við ársþing SASS.
Sveitarstjórn óskar Leikfélagi Sólheima innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu og þakkar
félaginu fyrir mikilvægt framlag til menningarlífs og inngildingar.

12. Erindi frá Hestamannafélaginu Jökli.
Fyrir liggur erindi frá Hestamannafélaginu Jökli, dagsett 29. október 2026, þar sem óskað er eftir
áframhaldandi stuðningi sveitarfélagsins við starf félagsins og endurnýjun núverandi samstarfs- og
styrktarsamnings að gildistíma hans loknum. Með erindinu fylgir ársskýrsla æskulýðsnefndar félagsins
fyrir starfsárið 2025–2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða áframhaldandi fjárhagslegan stuðning við starf Hestamannafélagsins
Jökuls og felur sveitarstjóra að vinna að endurnýjun samstarfs- og styrktarsamnings við félagið.
Samningurinn verði lagður fyrir sveitarstjórn til samþykktar.


Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið klukkan: 15:19

Skjöl

Getum við bætt efni þessarar síðu?