180 ára afmæli Búrfellskirkju fagnað í blíðskaparveðri
Sunnudaginn 10. ágúst var haldið upp á 180 ára afmæli Búrfellskirkju með hátíðarguðsþjónustu. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur þjónaði og prédikaði, á meðan Matthías Harðarson dómorganisti leiddi safnaðarsöng. Sturla Jónsson var hringjari og Sigurður Böðvarsson meðhjálpari. Ritningarlestra fluttu Elísa Schram og Anna Ýr, og Laufey Böðvarsdóttir sagði í stuttu máli frá sögu kirkjunnar.
Sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, tók einnig til máls og færði kirkjunni veglega gjöf fyrir hönd sveitarstjórnar, garðbekk úr graníti, unninn af Steinsmiðju Akureyrar. Bekkurinn er tákn um styrk, festu og samveru, gildi sem kirkjan hefur staðið fyrir í gegnum tíðina. Með gjöfinni vill sveitastjórn styrkja kirkjuna sem stað þar sem áfram verður hægt að koma saman og njóta samverunnar og umhverfisins jafnt í sorg sem og í gleði.
Að lokinni guðsþjónustu bauð Lísa Thomsen kirkjubóndi til kaffisamsætis að Búrfelli. Velunnarar Búrfellskirkju voru hvattir til að mæta og fagna þessum merka áfanga sem tókst einstaklega vel í blíðskaparveðri.
Hér má sjá nokkar svipmyndir frá 180 ára afmælishátíðinni.








