Agnar Þór Helgason ráðinn forstöðumaður íþróttamannvirkja Grímsnes- og Grafningshrepps
22.10.2025
Agnar Þór Helgason hefur verið ráðinn forstöðumaður íþróttamannvirkja hjá Grímsnes- og Grafningshreppi.
Agnar hefur víðtæka reynslu af stjórnunar- og rekstrarstörfum, en hann starfaði í sjö ár sem verslunarstjóri hjá Icewear þar sem hann bar ábyrgð á daglegum rekstri, starfsmannamálum og fjármálum nokkurra verslana. Síðast liðið ár hefur Agnar starfað sem verslunastjóri Hlaupár og hefur hann ríkan áhuga á íþróttum og lýðheilsu.
„Ég er nýfluttur á Borg ásamt fjölskyldunni og hlakka mjög til að kynnast íbúum Grímsnes- og Grafningshrepps og vinna að áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja “ segir Agnar.
Við óskum Agnari innilega til hamingju með ráðninguna og hlökkum til góðs samstarfs.
Síðast uppfært 22. október 2025