Álagning fasteignagjalda 2026
Sveitarfélagið Grímsnes- og Grafningshreppur hefur lokið við vinnslu upphafsálagningar fasteignagjalda vegna ársins 2026. Öll gjöld vegna vatnsgjalds, lóðarleigu, rotþróar, fráveitu og sorphirðu hafa sömu gjalddaga og fasteignaskattur og fer innheimta þeirra gjalda samhliða innheimtu fasteignaskatts, þar sem það á við.
Gjalddagar fasteignaskatts, vatnsgjalds, lóðarleigu, fráveitu og sorphirðu eru allt að 10 gjalddagar og koma til greiðslu á tímabilinu mars til desember
Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda árið 2026 eru eftirfarandi:
Fjárhæðir að kr. 50.000.- einn gjalddagi 1. maí 2026
Fjárhæðir kr. 50.001.- til kr. 250.000.- fimm gjalddagar fyrsti gjalddagi 1. mars og síðasti 1. júlí 2026
Fjárhæðir kr. 250.001.- og yfir tíu gjalddagar fyrsti gjalddagi 1. mars og síðasti
1. desember 2026
Álagningarseðlar eru ekki sendir út í bréfapósti en hægt er að nálgast þá á heimasíðunni www.island.is en þar eru þeir aðgengilegir í pósthólfi á „Mínar síður“. Innskráning á ,,Mínar síður“ er með rafrænum skilríkjum.
Álagningarseðill birtist á www.island.is - pósthólf föstudaginn 20. febrúar 2026.
Allar álagningarforsendur er hægt að sjá á vefsíðu sveitarfélagsins gogg.is
Þeir sem óska frekari upplýsinga um álagninguna fyrir árið 2026 er bent á skrifstofu sveitarfélagsins á netfangið gogg@gogg.is
Á heimasíðu sveitarfélagsins er einnig hægt að sjá greinargóðar leiðbeiningar um lestur álagningarseðils.