Fara í efni

Ársreikningur sveitarfélagsins Grímsnes- og Grafningshrepps 2025

Ársreikningur Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir árið 2025 var lagður fram til síðari umræðu í sveitarstjórn miðvikudaginn 29. apríl 2026. Ársreikningurinn endurspeglar áframhaldandi traustan rekstur og sterka fjárhagsstöðu.
Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 297,8 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða samantekinna reikningsskila sveitarfélagsins er einnig jákvæð að fjárhæð 325,6 milljónir króna og er afkoman því 148,2 milljónum króna betri en áætlun gerði ráð fyrir. Veltufé frá rekstri var 405,2 milljónir króna árið 2025, eða 16,9% af heildartekjum, sem endurspeglar það svigrúm sem reksturinn gefur til að standa undir framkvæmdum og afborgunum lána. Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 443 milljónir króna og var hærra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Engin ný lán voru tekin á árinu og afborganir langtímalána námu 106,2 milljónum króna.

Heildarvelta sveitarfélagsins á árinu 2025, fyrir A- og B-hluta nam 2.397,1 milljón króna og var 414,1 milljón króna yfir áætlun. Skatttekjur sveitarfélagsins námu samtals 1.407,8 milljónum króna. Samtals námu rekstrartekjur A-hluta 2.118,1 milljón króna, en áætlun gerði ráð fyrir 1.697,7 milljónum króna. Afkoma rekstrareininga innan B-hluta var mismunandi á árinu. Vatnsveita og fráveita skiluðu betri niðurstöðu en áætlanir gerðu ráð fyrir, á meðan rekstur hitaveitu var lakari en áætlað var. Félagslegar íbúðir skiluðu einnig neikvæðri rekstrarniðurstöðu.
Fjárfestingar sveitarfélagsins voru áfram umtalsverðar á árinu 2025, en samtals námu fjárfestingar A- og B-hluta 731,9 milljónum króna.

Skuldaviðmið vel undir lögbundnu 150% viðmiði
Skuldaviðmið A- og B-hluta sveitarfélagsins er 39,2% í árslok 2025 og er því vel undir lögbundnu hámarki sem er 150%. Samkvæmt áætlun með viðaukum var gert ráð fyrir að skuldaviðmið yrði 57,6% og er niðurstaðan því mun hagstæðari en gert var ráð fyrir.

Íbúafjöldi samkvæmt Hagstofu Íslands var 658 þann 1. janúar 2026, en var 613 árið áður. Íbúum hefur því fjölgað um 7,3% á árinu 2025. Samkvæmt Þjóðskrá eru íbúar sveitarfélagsins hins vegar orðnir 746 þann 29. apríl 2026, munar þar allnokkru en allt bendir þó til áframhaldandi fjölgunar íbúa. Stöðugildi í árslok 2025 voru 51 en voru 46,5 í árslok 2024.

„Verkefni sveitarfélagsins er að halda áfram á braut ráðdeildar í rekstri og ábyrgrar fjármálastjórnunar. Okkur eru allir vegir færir á næstu árum til frekari uppbyggingar og þjónustu við íbúa og fasteignaeigendur.“

Fjóla St. Kristinsdóttir
Sveitarstjóri

Síðast uppfært 29. apríl 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?