Fara í efni

Björgunarmiðstöðin á Borg rís

Burðarvirki nýrrar björgunarmiðstöðvar á Borg var reist föstudaginn 23. október, tæpum mánuði eftir að gólfplatan var steypt. Límtrésgrindin er komin upp og nú sést vel hvernig húsið við Þinggerði 1 mun líta út.

Næstu skref

Nú er unnið að frágangi burðarvirkisins áður en húsið verður klætt. Veggir og þak verða klædd stálklæddum steinullareiningum og milligólfið er einnig úr límtré. HR smíði annast framkvæmdina og burðarvirkið kemur frá Límtré Vírneti.

Björgunarmiðstöðin verður í sama stíl og aðrar stöðvar á Suðurlandi: dökkgrá klæðning með rauðum aksturshurðum, gönguhurðum og gluggum. Í mæni þaksins verða tveir bogadregnir þakgluggar sem hleypa birtu inn í bílasalina.

Tvö hús á lóðinni

Auk aðalbyggingarinnar rís lítið stakstætt hús fyrir sameiginlegt tæknirými. Þar verða inntök veitna, rafmagnstafla og vararafstöð, svo starfsemin geti haldið áfram ef rafmagn fer af. Þar verður einnig loftpressa sem þjónar bæði Hjálparsveitinni Tintron og Brunavörnum Árnessýslu.

Öflug aðstaða fyrir viðbragðsaðila

Björgunarmiðstöðin verður rúmlega 1.100 fermetrar. Hún er sameiginlegt verkefni Grímsnes- og Grafningshrepps, Brunavarna Árnessýslu og Hjálparsveitarinnar Tintron, sem standa saman að byggingunni. Húsið skiptist í tvo hluta, hvorn með sínum bílasal og aðstöðu á tveimur hæðum.

Í hluta Brunavarna Árnessýslu verða búningsklefar með sturtum á neðri hæð, og eldhúskrókur og fundarsalur á efri hæð. Í hluta Tintron verða setustofa, búningsklefar og búnaðarrými á neðri hæð. Á efri hæð verður rými fyrir fundi og aðgerðastjórnun viðbragðsaðila, auk aðstöðu fyrir unglingastarf sveitarinnar.

Með miðstöðinni rís í fyrsta sinn slökkvistöð á Borg, sem styttir viðbragðstíma og eykur öryggi íbúa, sumarhúsaeigenda og ferðamanna á svæðinu.

HR smíði skilar húsinu fokheldu, og áætlað er að því verki ljúki í desember 2026. Við höldum áfram að segja frá framkvæmdinni eftir því sem verkinu miðar.

Síðast uppfært 26. október 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?