Fara í efni

Bólusetning gegn inflúensunni

 

Bólusetning gegn inflúensunni hefst mánudaginn 25. október á Heilsugæslunni í Laugarási.

Athugið að Sóttvarnarlæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar.

Frá 25. október til 8. nóvember geta því einungis eftirfarandi áhættuhópar pantað tíma í flensusprautu:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-,nýrna-, og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Barnshafandi konur
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

Frá og með 15. nóvember geta aðrir pantað tíma í flensusprautu

Athugið að æskilegt er að það líði a.m.k. tvær vikur milli inflúensubólusetningar og COVID 19 bólusetningar

Síðast uppfært 22. október 2021
Getum við bætt efni síðunnar?