Fara í efni

Breytt fyrirkomulag við niðurfellingu leikskólagjalda í skólafríum

Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 6. desember 2023 að leikskóladeild Kerhólsskóla skuli vera opin alla virka daga um jól, páska og vetrarfrí út þetta kjörtímabil.
Leikskólagjöld verða felld niður vegna virkra daga í jólafríi, páskafríi og vetrarfríi grunnskóladeildar Kerhólsskóla vegna barna sem ekki sækja leikskóla á þeim tíma enda hafi foreldrar eða forráðamenn sótt um niðurfellingu. 

Lágmarksfjöldi skráðra barna skal vera þrjú til að leikskóladeild haldist opin á viðkomandi dögum. Frestur til að skila inn umsókn eru tvær vikur, 14 dagar frá upphafsdegi frís, til dæmis hefjist jólafrí 18. desember skal umsókn skilað eigi síðar en 4. desember.  

Rafræn umsókn

Síðast uppfært 5. janúar 2024
Getum við bætt efni síðunnar?