Grímsnes- og Grafningshreppur í fremstu röð í uppbyggingu íbúða
Ný skýrsla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) staðfestir það sem við hér í sveitinni höfum lengi fundið: það er kraftur í Grímsnes- og Grafningshreppi. Þótt hægt hafi á byggingarmarkaði á landsvísu er Suðurland í fararbroddi í uppbyggingu íbúða miðað við stærð íbúðastofnsins, og Grímsnes- og Grafningshreppur er þar í hópi efstu sveitarfélaga.
Tölurnar tala sínu máli
Í septemberskýrslu HMS kemur fram að íbúðum í byggingu fækkaði um 11% á landsvísu frá mars til september og að nýjar framkvæmdir hafa ekki verið færri síðan talningar hófust árið 2021. Á Suðurlandi er staðan önnur. Í Grímsnes- og Grafningshreppi eru 22 íbúðir í byggingu, sem samsvarar 9,1% af fullbúnum íbúðum í sveitarfélaginu. Á Suðurlandi eru aðeins Ölfus, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Hveragerði með hærra hlutfall.
Á landsvísu hefur fullbúnum en ónotuðum íbúðum fjölgað um 85% á einu ári, en í Grímsnes- og Grafningshreppi er engin slík íbúð. Hér er byggt fyrir fólk sem ætlar að flytja inn.
Nýtt hverfi á Borg tekur á sig mynd
Á Borg rís nú ný og fjölbreytt íbúðabyggð með einbýlishúsum, par- og raðhúsum og minni fjölbýlishúsum. Alls er gert ráð fyrir 79 lóðum með 160–220 íbúðum, þar af 57 íbúðum í fyrsta áfanga. Göturnar Lækjartún og Borgartún eru tilbúnar og nokkrar lóðir þegar seldar. Hverfið tengist nýrri og fullkominni skólphreinsistöð og að hluta er notast við blágrænar ofanvatnslausnir.
Uppbyggingin nær lengra en til íbúða. Í nóvember 2024 samþykkti sveitarstjórn samhljóða að taka tilboði E. Sigurðssonar ehf. í verslunar- og þjónustulóðirnar við Miðtún 1–11 á nýju miðsvæði á Borg. Í apríl á þessu ári undirrituðu Laufdal, dótturfélag E. Sigurðssonar, og Drangar hf. viljayfirlýsingu um samstarf um Miðtún 1. Þar er stefnt að um 700 fermetra verslunarhúsnæði, og rætt er um frekari þjónustu- og orkutengda innviði. Á Miðtúni 3–9 er gert ráð fyrir verslun og þjónustu með möguleika á íbúðum á efri hæðum, og á Miðtúni 11 er gert ráð fyrir hóteli með allt að 100 herbergjum. Þetta styrkir nærþjónustu og skapar ný störf í heimabyggð.
Við Sólheimaveg er búið að skipuleggja 52 lóða athafnasvæði fyrir léttan iðnað og fjölbreyttan rekstur. Þá er gert ráð fyrir nýjum 9 holu golfvelli í örfárra mínútna fjarlægð frá íbúðabyggðinni. Golfsettið má því gjarnan fylgja með í flutningunum.
Skógartún er næsta gata í röðinni
Fyrsta skóflustungan að Skógartúni var tekin 7. maí síðastliðinn. Við götuna verða lóðir fyrir einbýlis-, par- og raðhús. Samhliða verður lagður nýr aðkomuvegur að hverfinu, sem í framtíðinni tengist Biskupstungnabraut, ásamt göngustígum um hverfið. Jarðtækni ehf. annast framkvæmdir, Efla sá um hönnun og Verkís hefur eftirlit.
Úthlutun lóða við Skógartún hefst á næstunni og verður auglýst sérstaklega. Fylgist vel með!
Lóðir lausar núna
Á Borg er ekkert greitt fyrir byggingarrétt, aðeins gatnagerðargjöld. Eftirfarandi lóðir eru lausar til úthlutunar:
- Einbýlishús: Lækjartún 3, 4, 5 og 6. Gatnagerðargjöld eru um 7,3–7,6 m.kr.
- Parhús: Lækjartún 2 og 9
- Raðhús: Hraunbraut 1 og 4
- Fjölbýlishús: Borgartún 1 og 2
Gatnagerðargjöld miðast við verðgrunn í ágúst 2026. Tengi- og heimæðagjöld eru innheimt sérstaklega. Lóðirnar eru leigulóðir og árleg lóðarleiga er 1% af lóðarmati.
Öflugt samfélag
Grímsnes- og Grafningshreppur er samheldið og drífandi samfélag á besta stað við Gullna hringinn. Kerhólsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli fyrir börn frá 12 mánaða aldri upp í 10. bekk. Hann er í göngufæri frá nýja hverfinu, og þar fær hvert barn að njóta sín í um 90 nemenda skóla. Sundlaug, líkamsrækt, frístund og skipulagt íþróttastarf eru á sama stað.
Félagslífið er líflegt. Ungmennafélagið Hvöt, Leikfélagið Borg, Kvenfélagið, Hjálparsveitin Tintron, Skógræktarfélagið og fleiri skapa vettvang fyrir fólk á öllum aldri. Kerið, Sogið og ótal gönguleiðir eru innan seilingar. Hér fer kyrrðin saman við nálægð við alla helstu þjónustu.
Nýir íbúar eru boðnir hjartanlega velkomnir, og hér verða þeir fljótt hluti af hópnum.
Tryggðu þér lóð
Það er pláss fyrir þig á Borg. Umsóknareyðublað er á gogg.is og því má skila á skrifstofu sveitarfélagsins eða senda á gogg@gogg.is. Nánari upplýsingar eru á borgisveit.is og í síma 480 5500.