Ert þú starfandi í ferðaþjónustu í uppsveitum Árnessýslu?
Sveitarfélög Uppsveita Árnessýslu hafa tekið þá ákvörðun að leggja af stað í vegferð þar sem vakin verður athygli á mikilvægi ferðaþjónustunnar í Uppsveitunum. Ástæðan eru þær auknu álögur sem ríkisstjórnin ætlar sér að leggja á ferðaþjónustuna einkum í formi náttúrupassa sem mun einungis vera lagður á aðgengi að Gullfossi, Geysi og Þingvöllum. Sem og hækkun á virðisaukaskatti baðlóna úr 11% í 24%.
Vænta má að áhrifin af gjaldtökunni verði:
Verulegur samdráttur í komum ferðamanna í Uppsveitum Árnessýslu með tilheyrandi fjárhagslegu höggi á fyrirtæki og almenning á svæðinu.
Ferðaþjónustufyrirtæki eru hvött til að skoða út frá rekstri sínum hvaða áhrif samdráttur í eftirspurn á bilinu 5% – 30% muni hafa á fyrirtækin!
Staðreyndirnar eru eftirfarandi:
Hvorki greining né áhrifamat hefur verið unnið fyrir svæðið og því enginn sem getur staðfest það hvort þetta muni hafa áhrif á ferðaþjónustuna á Gullna hringnum né á landsvísu.
Ríkisstjórnin ætlar að innheimta 6 milljarða með náttúrupassanum sem verður einungis innheimtur fyrir heimsókn á Þingvelli, Gullfoss og Geysi. Bílastætagjöld munu einungis falla niður á Þingvöllum en standa óbreytt á Gullfossi og Geysi þar sem þau eru ekki í eigu ríkisins.
Heildar hagnaður ferðaþjónustunnar á landinu var 20 milljarðar árið 2024. Ríkisstjórnin ætlar að innheimta 10 milljarðar af ferðaþjónustunni í formi aukinna skatta árið 2027. S.s. helmingurinn af hagnaðinum!
Við boðum til fundar
Sveitarfélögin í Uppsveitum Árnessýslu boða til fundar þriðjudaginn 3. nóvember annars vegar á Hestakránni klukkan 17:30 og hins vegar í Aratungu klukkan 20:00. Vonast er til að eiga gott samtal með ferðaþjónustuaðilum á svæðinu einkum til á ákveða næstu skref því tíminn er naumur!
Smelltu hér til að skrá þig á fundinn og við sendum þér fundarboð