Fara í efni

Fjárhagsáætlun Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir árið 2026 var samþykkt samhljóða á fundi sveitarstjórnar þann 15. desember 2025.

Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Grímsnes- og Grafningshrepp fyrir árið 2026 er hér lögð fram til seinni umræðu ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2027 – 2029. Fyrri umræða fór fram þann 5. nóvember síðastliðinn.

Fjárhagsáætlunin er sett fram í samræmi við 62. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, fyrir A-hluta og samantekinn reikning fyrir A- og B-hluta.

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps kjörtímabilið 2022-2026 leggur nú fram sína fjórðu og jafnframt síðustu fjárhagsáætlun á kjörtímabilinu.

Samkvæmt útkomuspá A- og B- hluta verður rekstrarniðurstaða ársins 2025 jákvæð sem nemur um 194 milljónum króna. Helstu niðurstöðutölur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026 eru þær að A- og B-hluti samantekin, skilar jákvæðri afkomu upp á 368 milljónir króna og veltufé frá rekstri er áætlað 390 milljónir króna, á meðan A-hluti er áætlaður með jákvæða rekstrarniðurstöðu upp á 338 milljónir króna og veltufé frá rekstri upp á 292 milljónir króna.

Lykiltölur fjárhagsáætlunar
Lykiltölur fjárhagsáætlunar Grímsnes- og Grafningshrepps veita yfirsýn yfir þróun rekstrar, efnahags og fjárstreymis sveitarfélagsins á árunum 2026–2029. Hlutfall skatttekna af heildartekjum helst stöðugt á tímabilinu og endurspeglar traustan tekjustofn sveitarfélagsins.

Lykiltölur sýna vaxandi tekjur og jákvæða rekstrarniðurstöðu á tímabilinu, samhliða auknum íbúafjölda. Efnahagsstaða sveitarfélagsins styrkist jafnframt, þar sem eiginfjárhlutfall hækkar og skuldir lækka í hlutfalli við eignir. Veltufjárhlutfall batnar einnig, sem bendir til aukins greiðsluhæfis og sterkari lausafjárstöðu.

Í heild sinni endurspegla lykiltölur fjárhagsáætlunar að reksturinn er sjálfbær og í samræmi við markmið sveitarfélagsins um framsýni og ábyrga fjármálastjórn.

Framkvæmdir og fjárfestingar
Gert er ráð fyrir að heildarfjárfesting ársins 2026 nemi tæpum 900 milljónum króna. Ber þar helst að nefna Slökkvistöð við Þinggerði, gatnagerð og stækkun Kerhólsskóla yfir í efri hæð núverandi stjórnsýsluhúss. Þá eru einnig áætlaðar framkvæmdir við aðkomu að leikskóladeild Kerhólsskóla, lagning hjólastíga auk fjölda annarra smærri verkefna og viðhaldsverkefna.

Áfram lækka fasteignaskattar
Gjaldstofn til álagningar fasteignaskatts er fasteignamat sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun gefur út. Fasteignaskattur reiknast sem hlutfall af fasteignamati miðað við skráða notkun fasteignar.

Álagningarhlutfall fasteignaskatts lækkar á árinu 2026, á íbúðarhúsnæði (A-flokk) úr 0,425% í 0,415%. Á atvinnuhúsnæði (C-flokk) úr 1,60% í 1,55%, álagningarhlutfall fasteignaskatts á stofnanir (B-flokk) verður óbreytt 1,32% sem og hlutfall á lóðaleigu.

Útsvar
Stofn til álagningar útsvars er hinn sami og tekjuskattsstofn ríkisins og er útsvarið innheimt samhliða tekjuskattinum. Við áætlun á útsvari þarf að horfa til væntanlegra útsvarstekna, fjölgunar íbúa og launaþróunar.

Álagningarhlutfall útsvars verður 14,14% fyrir árið 2026.

Ný þjóðhagsspá
Forsendur fyrir fjárhagsáætlun Grímsnes- og Grafningshrepps eru í samræmi við nýja þjóðhagsspá Hagstofu Íslands sem birt var 14. nóvember sl. Í uppfærðri þjóðhagsspá er nú gert ráð fyrir minni hagvexti, hærri verðbólgu og auknu atvinnuleysi.

Stafræn vegferð
Tækifærin til að bæta þjónustu liggja víða í starfsemi sveitarfélaga. Nú hefur sveitarfélagið Grímsnes- og Grafningshreppur gert samning við APRÓ um þróunarstarf þar sem unnið er markvisst að innleiðingu gervigreindar og stafrænna lausna með það að markmiði að auka skilvirkni, bæta ákvarðanatöku og styðja við sjálfbæran rekstur. Með stafrænni umbreytingu má tryggja enn betri þjónustu við íbúa, aukið upplýsingaflæði og ábyrga nýtingu á almannafé.

Skipuritsbreytingar
Aukinn vöxtur og útlit fyrir áframhaldandi fjölgun íbúa, auknar framkvæmdir og fjölbreyttari verkefni hafa kallað á endurskoðun á innra skipulagi sveitarfélagsins. Á árinu var unnið að gerð nýs skipurits í samstarfi við ráðgjafafyrirtækið Mögnum, þar sem lögð var áhersla á samráð við starfsfólk og sveitarstjórn. Markmiðið var að skapa sameiginlega sýn, skýra ábyrgðarsvið og styrkja faglega stjórnsýslu sveitarfélagsins.

Nýtt skipurit tók gildi 1. nóvember 2025 og var í framhaldinu auglýst eftir deildarstjóra fjármála- og stjórnsýslu. Stefnt er að því að nýr deildarstjóri hefji störf 1. febrúar 2026. Samhliða skipuritsbreytingunum hefur verið ákveðið að segja upp 25% starfshlutfalli oddvita frá og með 31. desember 2025.

Með þessum breytingum verður skrifstofa sveitarfélagsins betur í stakk búin til að mæta auknum verkefnum og fagleg stjórnsýsla styrkist verulega. Skipuritið tryggir skýrari verkaskiptingu, eykur fagmennsku og bætir stuðning við starfsfólk, sveitarstjóra og sveitarstjórn.

Íbúaþróun
Að lokum má geta þess að íbúaþróun hefur verið vel yfir háspá húsnæðisáætlunar sveitarfélagsins á árinu og má í þeim efnum geta fréttar á heimasíðu Þjóðskrár Íslands frá 11. desember 2025. Þar kemur fram að þegar horft er til hlutfallslegra breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum sveitarfélagsins Grímsnes- og Grafningshrepps fjölgað næst mest á landinu eða um 14,9% til og með nóvember 2025.

Sveitarfélagið Grímsnes- og Grafningshreppur
Allar gerðir íbúðarhúsalóða eru nú tilbúnar til úthlutunar hjá sveitarfélaginu einbýlishúsalóðir, par, rað- og fjölbýlishúsalóðir. Áfram er stefnt að því að skapa jákvæðar aðstæður til búsetu og atvinnureksturs í sveitarfélaginu með nægu framboði lóða og lækkunar á álögum.

Orkuöflun og uppbygging innviða heldur áfram auk þess sem unnið er að því að efla umgjörð Kerhólsskóla sem er hjarta samfélagsins.

Fjóla Steindóra Kristinsdóttir
Sveitarstjóri

Síðast uppfært 5. janúar 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?