Fjölmenni á opnu húsi í nýju stjórnsýsluhúsi Grímsnes- og Grafningshrepps
Fjölmenni sótti opið hús í nýju stjórnsýsluhúsi Grímsnes- og Grafningshrepps á Borg fimmtudaginn 19. mars síðastliðinn, en húsið hefur nýlega verið tekið í notkun eftir að hafa hlotið fullnaðarúttekt.
Opið hús var haldið í þeim tilgangi að gefa íbúum og öðrum áhugasömum kost á að kynna sér aðstöðuna, starfsemi sveitarfélagsins og þá þjónustu sem þar verður veitt. Gestir gengu um húsið, kynntu sér vinnuaðstöðu starfsfólks og nutu leiðsagnar um báðar hæðir byggingarinnar.
Byggingin er rúmlega 670 fermetrar að stærð á tveimur hæðum. Á efri hæðinni eru skrifstofur, fundarherbergi, opið vinnurými og kaffistofa, þar á meðal tvö fundarherbergi sem bera nöfnin Búrfell og Mosfell. Þá er einnig gert ráð fyrir vinnuaðstöðu fyrir samstarfsaðila á borð við UTU, SVÁ og byggðarþróunarfulltrúa uppsveita. Á neðri hæð hússins er að finna líkamsrækt, jógasal og aðstöðu fyrir sjúkraþjálfara.
Framkvæmdir við húsið gengu samkvæmt áætlun og var framkvæmdin til fyrirmyndar að sögn þeirra sem að verkefninu komu. Verktakar og samstarfsaðilar fengu sérstakar þakkir fyrir fagmennsku og gott samstarf á meðan á byggingu stóð.
Góð stemning ríkti á opna húsinu þar sem boðið var upp á veitingar samhliða leiðsögn um húsnæðið. Gestir lýstu yfir ánægju með aðstöðuna og töldu nýja byggingu mikilvægt framfaraskref fyrir sveitarfélagið.
„Við erum afar stolt af þessari glæsilegu byggingu sem mun verða mikil lyftistöng fyrir starfsemi sveitarfélagsins og alla þjónustu við samfélagið um ókomin ár,“ sagði Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps.











