Fara í efni

Atvinna í boði - FORSTÖÐUMAÐUR Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs.

FORSTÖÐUMAÐUR - Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs.

Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs. leitar að öflugum og skipulögðum aðila í starf forstöðumanns.

Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem lögð er áhersla á faglega stjórnun, góða yfirsýn og hæfni til að innleiða og stýra verkefnum.

Ásamt forstöðumanni eru starfandi tveir deildarstjórar á sviði velferðarþjónustu og skólaþjónustu.

Ráðningin er tímabundin til eins árs með möguleika á framhaldi sem skoðað verður að þeim tíma liðnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stefnumótun og eftirfylgni með markmiðum byggðasamlagsins
  • Almenn verkefnastýring og innleiðing nýrra verkferla
  • Daglegur rekstur, stjórnun og starfsmannamál
  • Þátttaka í stjórnarfundum og undirbúningur þeirra
  • Yfirumsjón með innleiðingu og vinnulagi í farsæld barna
  • Skipulag og utanumhald heimaþjónustu
  • Samskipti við Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu), m.a. vegna þjónustu og dagdvalar
  • Ýmis önnur verkefni í samráði við stjórn og aðra hagaðila

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun, verkefnastýringu og mannauðsmálum
  • Þekking á stjórnsýslu sveitarfélaga kostur
  • Leiðtogahæfni og geta til að innleiða breytingar
  • Góð skipulagsfærni og yfirsýn
  • Rík færni í samskiptum og samstarfi
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði

Sótt er um á www.mognum.is

Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2026

Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt umsagnaraðilum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Nánari upplýsingar veita:

Sigríður Ólafsdóttir sigga@mognum.is

Telma Eiðsdóttir telma@mognum.is

Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings (SVÁ) er fagleg og samþætt þjónusta með velferð íbúa að leiðarljósi. Meginstarfsstöð þjónustunnar er staðsett í Laugarási en starfssvæðið er víðfeðmt og fara starfsmenn á milli starfsstöðva á þjónustusvæðinu í samræmi við verkefni hverju sinni.

Sveitarfélögin sem standa að byggðasamlaginu eru Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur.

 
 
Síðast uppfært 25. febrúar 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?