Fara í efni

Framkvæmdir í Grímsnes- og Grafningshrepp 2026

Það er óhætt að segja að mikið sé um að vera í Grímsnes- og Grafningshreppi um þessar mundir. Fjölbreyttar framkvæmdir eru í fullum gangi í sveitarfélaginu og munu þær bæta aðstöðu íbúa, nemenda og viðbragðsaðila til framtíðar.

Leikskólalóðin er að taka miklum breytingum þar sem unnið er að stækkun hennar, nýjum yfirborðsfrágangi og uppsetningu kastala og fjölbreyttra leiktækja. Þar verða sett upp einhver glæsilegustu leiktæki landsins og verður lóðin hin glæsilegasta þegar framkvæmdum lýkur. Grjótgás og Jóhann Helgi & co vinna að framkvæmdinni og er stefnt að verklokum í ágúst. Við vonum að yngstu nemendur sveitarfélagsins verði hæstánægðir með nýju aðstöðuna.



Samhliða þessu er hafið niðurrif á efri hæð Kerhólsskóla, þar sem stjórnsýsla sveitarfélagsins var áður til húsa. Rýmið hefur verið endurhannað fyrir starfsemi skólans og verður framkvæmdin boðin út á næstunni. Þar er gert ráð fyrir nýjum skólastofum ásamt öðrum rýmum sem munu nýtast skólastarfinu og skapa aukið svigrúm til framtíðar.

Framkvæmdir við nýja björgunarmiðstöð á Borg eru einnig í fullum gangi hjá HR smíði. Nú er undirbúningur hafinn fyrir vinnu við sökkla aðalbyggingarinnar. Gert er ráð fyrir að burðarvirki frá Límtré Vírneti komi á verkstað í september og hefjist þá reising hússins. Verkið er á áætlun og mun ný björgunarmiðstöð gjörbreyta aðstöðu viðbragðsaðila á svæðinu.

Jarðtækni vinnur jafnframt að uppbyggingu nýrrar götu og göngustíga við hverfið á Borg. Þar verður gerð ný tenging við Biskupstungnabraut og lögð gatan Skógartún, þar sem nýjar lóðir verða auglýstar bráðlega. Áfram verður unnið með blágrænar ofanvatnslausnir og samhliða framkvæmdunum verða göngustígar og lýsing í nýja hverfinu fullgerð.

Að lokum er undirbúningsvinna við gerð hjóla- og göngustíga í fullum gangi og verður verkið hafið í haust.

Það er því sannarlega líf og fjör í framkvæmdum í Grímsnes- og Grafningshreppi. Verkefnin eru fjölbreytt en eiga það sameiginlegt að bæta þjónustu, öryggi og umhverfi í sveitarfélaginu og byggja undir áframhaldandi vöxt og öflugt samfélag.

Síðast uppfært 10. ágúst 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?