Fara í efni

Framlagning kjörskrár og Kjörfundur í Grímsnes- og Grafningshreppi vegna forsetakosninga þann 1. júní 2024

Framlagning kjörskrár fyrir Grímsnes- og Grafningshrepp vegna forsetakosninga þann 1. júní 2024
Kjörskrá vegna forsetakosninga þann 1. júní 2024 liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins í stjórnsýsluhúsinu á Borg frá og með 9. maí 2024 til kjördags. Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl 9:00-15:00. og föstudaga kl. 9:00 – 12:00

Kjörfundur í Grímsnes- og Grafningshreppi
Kjörfundur vegna forsetakosninga fer fram laugardaginn 1. júní 2024. Kosið verður í stjórnsýsluhúsinu á Borg í fundarsal sveitarstjórnar á 2. hæð.
Tímasetning auglýst þegar nær dregur á heimasíðunni gogg.is
Kjósendur eru minntir á að hafa meðferðis persónuskilríki með mynd og framvísa þeim ef óskað er.

Kjörstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps

 

Síðast uppfært 6. maí 2024
Getum við bætt efni síðunnar?