Fara í efni

Fundarboð 610. fundar sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps.

 

610. fundur sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu Borg, miðvikudaginn 18. febrúar kl. 9:00. 

1. Fundargerðir.
a) Fundargerð 6. fundar nefndar um skólahúsnæði Kerhólsskóla 20. nóvember 2025.
b) Fundargerð 7. fundar nefndar um skólahúsnæði Kerhólsskóla 11. desember 2025.
c) Fundargerð 8. verkfundar nefndar um byggingu slökkvistöðvar á Borg, 9. desember 2025.
d) Fundargerð 9. verkfundar nefndar um byggingu slökkvistöðvar á Borg, 6. janúar 2026.
e) Fundargerð 10. verkfundar nefndar um byggingu slökkvistöðvar á Borg, 20. janúar 2026.
f) Fundargerð 11. verkfundar nefndar um byggingu slökkvistöðvar á Borg, 3. febrúar 2026.
g) Fundargerð 31. fundar framkvæmda- og veitunefndar, 12. febrúar 2026.
Mál nr. 3 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
h) Fundargerð 319. fundar skipulagsnefndar UTU, 11. febrúar 2026.
Mál nr. 9, 10, 11, 12, 13 og 15 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
i) Fundargerð 133. fundar stjórnar byggðasamlagsins UTU, 14. janúar 2026.
Mál nr. 2 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
j) Fundargerð 12. fundar Oddvitanefndar, 11. febrúar 2026.
Mál nr. 1, 2, 3, 4 og 5 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
k) Fundargerð 215. fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga, 10. febrúar 2026.
l) Fundargerð 91. fundar stjórnar Bergrisans bs., 3. febrúar 2026.
m) Fundargerð 25. fundar stjórnar Arnardrangs hses., 3. febrúar 2026.
2. Viljayfirlýsing við Hjálparsveitina Tintron.
3. Gjaldskrá fyrir lása og lykla.
4. Umsókn um lóðina Lækjartún 7.
5. Umsókn um leikskóladvöl utan lögheimilissveitarfélags, vorönn 2026.
6. Nýr héraðsvegur að Bjarkarlæk í Grímsnes og Grafningshreppi.
7. Bréf frá Umboðsmanni Alþingis vegna máls númer 12777/2024 vegna kvörtunar Björgvins Njáls Ingólfssonar yfir ákvörðun sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps um synjun á endurgreiðslu vegna eldri gjaldskrá íþróttamiðstöðvar og sundlaugar sveitarfélagsins.
8. Stjórnsýslukærur nr. UUA2602004 - UUA2602009 og UUA26020011 - UUA2602013 og UUA2602016 vegna Heiðarbæjarlands í Grímsnes- og Grafningshreppi og Bláskógabyggð.
9. Samþykktir Sorpstöðvar Suðurlands, seinni umræða.
10. Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga.
11. Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 27/2026, „Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga“.
12. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 26/2026, „Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (rannsókn alvarlegra óvæntra atvika)“.
13. Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 40/2026, „Áform um gerð ungmennastefnu“.
14. Hvatning til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Borg, 15. febrúar 2026, Fjóla Steindóra Kristinsdóttir

Síðast uppfært 15. febrúar 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?