Fara í efni

Fyrsta skóflustunga að Björgunarmiðstöð á Borg

Í dag var stigið mikilvægt skref í uppbyggingu öryggis- og viðbragðsþjónustu í Grímsnes- og Grafningshreppi þegar fyrsta skóflustunga var tekin að nýrri björgunarmiðstöð við Þinggerði 1 á Borg í Grímsnesi. Fjöldi gesta mætti á staðinn til að fagna þessum tímamótum.

Nýja björgunarmiðstöðin er sameiginlegt verkefni Grímsnes- og Grafningshrepps, Brunavarna Árnessýslu og Hjálparsveitarinnar Tintron. Byggingin verður alls 1135 fermetrar að stærð og mun hýsa starfsemi beggja viðbragðsaðila. Um 60% húsnæðisins verður nýtt af Tintron en 40% af Brunavörnum Árnessýslu.

Með tilkomu miðstöðvarinnar verður í fyrsta sinn reist slökkvistöð á Borg, sem mun styrkja viðbragðsgetu á svæðinu og bæta þjónustu við íbúa og gesti sveitarfélagsins. Verkefnið er jafnframt liður í að skapa öflugri aðstöðu fyrir viðbragðsaðila til æfinga, búnaðar og daglegrar starfsemi.

Eftir skóflustunguna var boðið upp á kaffiveitingar í félagsheimilinu þar sem Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, og Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, fluttu ávörp. Þá fór Jakob Guðnason, varaformaður Tintron, yfir starfsemi sveitarinnar og mikilvægi þess að byggja upp aðstöðu sem styður við áframhaldandi þróun og öflugt viðbragð í sveitarfélaginu.

Í tilefni dagsins var jafnframt undirritaður endurnýjaður samstarfssamningur milli Tintron og sveitarfélagsins, auk viljayfirlýsingar um kaup og sölu á núverandi húsnæði sveitarinnar að Hraunbraut 2 á Borg og hlut Tintron í nýrri björgunarmiðstöð.

Framkvæmdir við björgunarmiðstöðina marka mikilvægan áfanga í uppbyggingu innviða í Grímsnes- og Grafningshreppi. Með verkefninu verður til aðstaða sem styður við öflugt samstarf viðbragðsaðila og eykur öryggi samfélagsins til framtíðar.

Síðast uppfært 13. mars 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?