Fyrsta skóflustunga að nýrri björgunarmiðstöð á Borg
Fimmtudaginn 12. mars kl. 15:00 verður tekin fyrsta skóflustunga að nýrri björgunarmiðstöð í Grímsnes- og Grafningshreppi. Athöfnin fer fram við Þinggerði 1 á Borg, um 100 metrum frá hringtorginu.
Nýja björgunarmiðstöðin verður 1135 fermetrar að stærð og mun hýsa starfsemi Brunavarna Árnessýslu og Hjálparsveitarinnar Tintron. Með tilkomu miðstöðvarinnar batnar aðstaða viðbragðsaðila til muna og styrkist þannig öryggi íbúa, ferðamanna og annarra sem dvelja í sveitarfélaginu.
Markmið verkefnisins er að skapa nútímalega og sameiginlega aðstöðu fyrir viðbragðsaðila sem styður við hraðari og skilvirkari viðbrögð við óhöppum og neyðartilvikum.
Íbúar og aðrir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir að vera viðstaddir þegar fyrsta skóflustungan verður tekin. Að athöfn lokinni verða léttar kaffiveitingar í Félagsheimilinu.
Við hlökkum til að sjá ykkur!