Fara í efni

Fyrsta skóflustungan að Skógartúni

Þann 7. maí var tekin fyrsta skóflustungan að nýrri íbúðagötu í Vesturbyggðinni á Borg, en gatan mun bera heitið Skógartún. Við götuna verða lóðir undir einbýlis-, par- og raðhús. Samhliða því verður gerður nýr aðkomuvegur að hverfinu sem mun í framtíðinni tengjast við Biskupstungnabraut, ásamt því að göngustígar verða lagðir um hverfið.
Verkið var boðið út fyrr í vor og var í kjölfarið samið við Jarðtækni ehf. sem mun annast verkið. Hönnun var í höndum Eflu og Verkís verður með eftirlit með verkinu.

Björn Kristinn varaoddviti, Gunnar Egill frá Jarðtækni, og Ása Valdís oddviti að lokinni fyrstu skóflustungunni.

Síðast uppfært 9. maí 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?