Fara í efni

Grímsnes- og Grafningshreppur auglýsir eftir starfsmanni í áhaldahús

Grímsnes- og Grafningshreppur auglýsir eftir starfsmanni í framtíðarstarf í áhaldahúsi sveitarfélagsins. Um er ræða 100% starf við fjölbreytt verkefni sem snúa að fasteignaumsjón, áhaldahúsi, opnum svæðum og umhverfismálum. Helstu verkefni eru almenn viðhalds- og þjónustuverkefni tengd fasteignum sveitarfélagsins og umhverfi þeirra ásamt ýmsum verklegum framkvæmdum eftir fyrirmælum yfirmanns. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir drifkrafti, samskiptafærni, með gott verkvit og er sjálfstæður í vinnubrögðum.

Hæfniskröfur:

  • Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum skilyrði
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Geta til að vinna í teymi
  • Ökuréttindi skilyrði
  • Vinnuvélaréttindi eða aukin ökuréttindi eru kostur
  • Menntun sem nýtist í starfi eða reynsla af sambærilegum verkefnum
  • Þekking á sveitarfélaginu og staðháttum er kostur

Laun og ráðningarkjör fara eftir kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar gefur Steinar Sigurjónsson á netfanginu steinar@gogg.is.

Umsóknarfrestur er til og með 18. desember og sendast umsóknir á netfangið steinar@gogg.is ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.

Öll kyn eru hvött til að sækja um. Öllum umsóknum verður svararð.

Síðast uppfært 8. desember 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?