Grímsnes- og Grafningshreppur auglýsir eftir sumarstarfsmanni
Grímsnes- og Grafningshreppur auglýsir eftir sumarstarfsmanni til að sinna flokkstjórn í vinnuskóla sveitarfélagsins og öðrum tilfallandi verkefnum. Flokkstjóri hefur umsjón með unglingum á aldrinum 13-16 ára við fjölbreytt umhverfistengd verkefni. Vinnuskólinn er starfræktur frá 8. júní - 16. júlí og þarf viðkomandi starfsmaður að geta unnið að lágmarki þann tíma. Að öðru leyti er starfstímabil samningsatriði.
Helstu verkefni:
- Flokkstjórn með vinnuskóla
- Halda utan um vinnuskýrslur fyrir ungmenni í vinnuskóla
- Almenn umhirða lóða og umhverfis við opin svæði og stofnanir sveitarfélagsins
- Önnur tilfallandi verkefni í áhaldahúsi og á gámasvæði
Hæfniskröfur:
- Skipulagsfærni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Bílpróf
- Lágmarksaldur er 18 ár
- Gott vald á íslensku og ensku
- Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Þekking á meðferð og umhirðu verkfæra og áhalda
- Reynsla af vinnu með ungmennum er kostur
Vinnuskólinn sinnir umhirðu, viðhaldi og fleiri verkefnum, oft í tengslum við garða, íþrótta- og útivistarsvæði. Verkefnin geta verið nokkuð fjölbreytt, svo sem að gróðursetja, slá og raka, hreinsa beð, grisja skóg, mála, tína rusl, sópa, þrífa, leggja grasþökur og göngustíga.
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Frekari fyrirspurnir og umsóknir sendist á steinar@gogg.is
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og stutt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað.