Grímsnes- og Grafningshreppur auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns íþróttamannvirkja.
Grímsnes- og Grafningshreppur auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns íþróttamannvirkja.
Leitað er að öflugum og metnaðarfullum leiðtoga í fjölbreytt og krefjandi starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri íþróttamannvirkja sveitarfélagsins
- Ábyrgð á fjármálum og rekstri og tryggir að reksturinn samræmist settum áætlunum
- Umsjón með starfsmannahaldi, þar á meðal skipulagningu vakta og verkefna
- Umsjón og eftirlit með viðhaldi húsnæðis, innviða, tækja og búnaðar í íþróttamannvirkjum
- Þátttaka í þróunarverkefnum, stefnumótun, áætlanagerð og öðru því sem tilheyrir ábyrgð forstöðumanns
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Víðtæk og farsæl reynsla af verkefnum sem falla að starfinu
- Leiðtogahæfni, þjónustulund og rík færni í mannlegum samskiptum
- Góð skipulagsfærni, árvekni og öguð vinnubrögð
- Rík hæfni til samstarfs og samskipta, heiðarleiki og traust orðspor
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og jákvæðni í samstarfi
- Góð færni í íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
- Almenn góð tölvukunnátta og tæknilæsi
Grímsnes- og Grafningshreppur er samheldið, kraftmikið og drífandi samfélag á besta stað við Gullna hringinn. Hér er margt sem heillar en fátt sem truflar: kyrrð og ró, náttúruperlur við hvert fótmál, dásamleg útivistarsvæði og öll helsta þjónusta annaðhvort á staðnum eða í næsta nágrenni.
Í sveitarfélaginu eru tæplega 700 íbúar og um 3400 frístundahús.
Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2025
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 100%.
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið.
Sótt er um á www.mognum.is.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is