Grímsnes- og Grafningshreppur hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026
Í dag tók Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, á móti viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir hönd sveitarfélagsins.
Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á vegum FKA – Félags kvenna í atvinnulífinu, sem hefur það að markmiði að stuðla að jafnari kynjahlutföllum í efstu stjórnunarstöðum. Viðurkenningin er veitt þeim fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum sem hafa náð að minnsta kosti 40% hlutfalli af hvoru kyni meðal æðstu stjórnenda.
Við hjá Grímsnes- og Grafningshreppi leggjum áherslu á að skapa vinnustað þar sem fólk hefur jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytni í stjórnendahópi stuðlar að fjölbreyttari sjónarmiðum, betri ákvarðanatöku og sterkari vinnustaðamenningu.
Við erum stolt af þessari viðurkenningu og lítum á hana sem hvatningu til að halda áfram að vinna markvisst að jafnrétti og fjölbreytni innan sveitarfélagsins.