Grímsnes- og Grafningshreppur hlýtur annað sæti í útnefningu Sveitarfélag ársins 2026
Grímsnes- og Grafningshreppur hlaut í dag annað sæti í útnefningu Sveitarfélags ársins 2026 og er þetta annað árið í röð sem sveitarfélagið nær þeim glæsilega árangri.
Sveitarfélag ársins er árleg viðurkenning sem byggir á starfsánægju og starfsumhverfi starfsfólks sveitarfélaga. Gallup framkvæmir könnunina og Mannauðssjóðurinn Hekla kemur að verkefninu. Í könnuninni eru meðal annars skoðaðir þættir á borð við stjórnun sveitarfélagsins, samskipti og starfsanda, aðstæður og aðbúnað starfsfólks, líðan í starfi og mat starfsfólks á starfskjörum sínum.
Grímsnes- og Grafningshreppur hefur ítrekað verið meðal þeirra sveitarfélaga sem ná bestum árangri í könnuninni undanfarin ár. Sveitarfélagið varð Sveitarfélag ársins árið 2022 og 2023, lenti í öðru sæti árið 2025 og endurtekur nú þann árangur árið 2026.
„Við erum ótrúlega stolt af þessum árangri og fyrst og fremst af starfsfólkinu okkar. Að ná öðru sæti annað árið í röð sýnir að góður árangur verður ekki til fyrir tilviljun heldur byggist hann á fólkinu, starfsandanum og þeirri vinnu sem lögð er í að skapa góðan vinnustað,“ segir Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps.
„Við höfum gengið í gegnum töluverðar breytingar og uppbyggingu á undanförnum misserum og þess vegna er sérstaklega ánægjulegt að sjá að starfsfólkið upplifir sveitarfélagið áfram sem góðan vinnustað. Þessi viðurkenning er jafnframt hvatning til okkar um að halda áfram að hlúa að mannauðnum okkar og gera enn betur.“
Hrunamannahreppur hlaut fyrsta sætið að þessu sinni og sendir Grímsnes- og Grafningshreppur nágrönnum sínum innilegar hamingjuóskir með glæsilegan árangur.
Það er jafnframt sérstaklega ánægjulegt að sjá að sveitarfélög í Uppsveitum Árnessýslu eru áfram áberandi meðal þeirra sveitarfélaga sem skara fram úr þegar kemur að starfsumhverfi og mannauðsmálum en þess má geta að Skeiða- og Gnúpverjahreppur hreppti fjórða sætið.
Til hamingju starfsfólk Grímsnes- og Grafningshrepps – þessi viðurkenning er ykkar.
![]() |
