Grímsnes- og Grafningshreppur leggur sitt af mörkum til stöðugleika
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hefur ákveðið að við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027 verði miðað við að almennar gjaldskrár hækki ekki umfram 2,5%.
Ákvörðunin er í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga um mikilvægi þess að sveitarfélög leggi sitt af mörkum til að stuðla að auknum efnahagslegum stöðugleika og haldi gjaldskrárhækkunum í hófi. Sveitarstjórn hefur jafnframt tekið undir áskoranir aðila vinnumarkaðarins um sameiginlegt átak sveitarfélaga, ríkis og atvinnulífs til að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta.
Með ákvörðuninni vill sveitarstjórn stuðla að auknum fyrirsjáanleika fyrir heimili og fyrirtæki í sveitarfélaginu og leggja sitt af mörkum til að draga úr kostnaðarhækkunum. Jafnframt verður áfram lögð áhersla á að standa vörð um góða og trausta þjónustu sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn hefur einnig lagt áherslu á að ríkisvaldið og stofnanir þess taki þátt í hinu sameiginlega átaki með sambærilegum hætti og takmarki hækkanir gjaldskráa og annarra álaga sem hafa bein áhrif á heimilin. Þá verður sérstaklega gætt að áhrifum gjaldskrárbreytinga á barnafjölskyldur og viðkvæma hópa.
Sveitarstjórn telur mikilvægt að allir aðilar samfélagsins leggi sitt af mörkum til að skapa aukinn stöðugleika, lægri verðbólgu og betri forsendur fyrir heimili og atvinnulíf.