Fara í efni

Heilsueflandi samfélag.

Grímsnes- og Grafningshreppur gerist Heilsueflandi samfélag

Grímsnes- og Grafningshreppur varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 14. september 2020 þegar Ingibjörg Harðardóttir sveitarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í félagsheimilinu Borg. 

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Starf Heilsueflandi leik-, grunn- og framhaldsskóla, Heilsueflandi vinnustaða og heilsuefling eldri borgara er mikilvægur liður í starfi Heilsueflandi samfélags. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög meðal annars að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Grímsnes- og Grafningshreppur er 33. sveitarfélagið sem gerist Heilsueflandi samfélag og búa nú um 93,3% landsmanna í slíku samfélagi.

 

Umsjón:
Guðrún Ása Kristleifsdóttir

Síðast uppfært 25. október 2021
Getum við bætt efni síðunnar?