Heilsuvika í Grímsnes- og Grafningshreppi 16.–22. mars
Dagana 16.–22. mars verður haldin Heilsuvika í Grímsnes- og Grafningshreppi, þar sem lögð verður áhersla á heilsu, hreyfingu og vellíðan íbúa. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til aukinnar hreyfingar, efla heilsuvitund og kynna þá fjölbreyttu starfsemi sem er í boði í sveitarfélaginu.
Í vikunni verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem íbúar geta tekið þátt í opnum æfingatímum, göngum, fjölskylduviðburðum og félagsstarfi. Einnig verða haldnir tveir fræðandi fyrirlestrar þar sem fjallað verður um svefn annars vegar og næringar og mikilvægi þeirrar fyrir heilsu og líðan.
Markmið Heilsuvikunnar er einnig að vekja athygli á þeim fjölbreyttu tækifærum sem íbúar hafa til hreyfingar og heilsueflingar í sínu nærumhverfi. Í sveitarfélaginu er öflugt starf á sviði íþrótta, tómstunda og lýðheilsu og er vonast til að vikan hvetji enn fleiri til að taka þátt í þeirri starfsemi.
Allir viðburðir vikunnar eru opnir og án endurgjalds, og eru allir hvattir til að taka þátt, prófa nýja hluti og eiga skemmtilega stund saman.
Nánari upplýsingar um dagskrá vikunnar má finna í viðburðardagatali heimasíðunnar en einnig verður sveitarfélagið duglegt að setja frá sér upplýsingar um viðburði á næstu dögum.
Sveitarfélagið hvetur íbúa til að nýta tækifærið og taka þátt í þessari skemmtilegu og heilsueflandi viku.