Fara í efni

Heilsuvika í Grímsnes- og Grafningshreppi vel heppnuð

Heilsuvika í Grímsnes- og Grafningshreppi, sem fram fór dagana 16.–22. mars, tókst afar vel og var þátttaka íbúa góð í fjölbreyttri dagskrá vikunnar.

Í vikunni var boðið upp á margvíslega viðburði með áherslu á hreyfingu, heilsu og vellíðan. Þar má nefna opna æfingatíma, gusa með gusumeistara, heilsubótargöngu um Nesjarvallarvirkjun auk fræðandi fyrirlestra um svefn og næringu. Markmið vikunnar var að hvetja íbúa til aukinnar hreyfingar ásamt því að vekja athygli á þeim fjölbreyttu möguleikum sem standa til boða í sveitarfélaginu þegar kemur að heilsueflingu og tómstundastarfi.

Sérstaklega var ánægjulegt að sjá breiðan hóp íbúa taka þátt, bæði unga sem aldna, og skapaðist góð stemning á viðburðum vikunnar.

Sveitarfélagið vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem lögðu sitt af mörkum við skipulagningu og framkvæmd Heilsuvikunnar. Þar má nefna Ungmennafélagið Hvöt, Félag 60+ í Grímsnes- og Grafningshreppi, ungmennaráð sveitarfélagsins, fyrirlesara og aðra samstarfsaðila sem komu að verkefninu og gerðu þessa viku að veruleika.

Einnig er íbúum sérstaklega þakkað fyrir þátttökuna, en án þeirra hefði Heilsuvikan ekki orðið sú árangursríka og lifandi vika sem raun bar vitni.

„Heilsuvikan er mikilvægur liður í þeirri uppbyggingu sem við erum að vinna að í sveitarfélaginu þegar kemur að heilsueflandi samfélagi. Með því að bjóða upp á aðgengilega og fjölbreytta viðburði viljum við skapa tækifæri fyrir íbúa til að hreyfa sig, fræðast og efla eigin heilsu. Þátttakan í ár sýnir að áhuginn er til staðar og það gefur okkur aukinn kraft til að halda áfram að þróa og styrkja þetta starf,“ segir Óttar Guðlaugsson, heilsu- og tómstundafulltrúi.

Heilsuvikan er mikilvægur liður í heilsueflingu í sveitarfélaginu og er stefnt að því að halda áfram að þróa slíkt starf í framtíðinni.

Síðast uppfært 23. mars 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?