Fara í efni

Heimagistingarleyfi vegna 2026

Fasteignaskattur er skattur sem lagður er á fasteignir í samræmi við lög um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og tekur álagningarhlutfall fasteignaskatts mið af nýtingu húsnæðisins. 
Sé fasteign nýtt til ferðaþjónustu ber að skattleggja eign með fasteignum sem falla undir c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995. Ef eign er auglýst til útleigu á vefmiðlum og hefur ekki heimagistingarleyfi þá er eignin skattlögð samkvæmt c-lið. 

Sveitarfélagið hvetur alla þá sem ætla sér að halda áfram að leigja eignina sína út á árinu 2026 og/eða aðila sem ætla að byrja að leigja út eignina sína til að sækja um heimagistingarleyfi í byrjun janúar.

Skráningin gildir út almanaksárið en endurnýja þarf skráningu á hverju ári ef ætlunin er að halda starfsemi áfram.
Nánari upplýsingar og umsókn:
Heimagisting



Síðast uppfært 19. desember 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?