Fara í efni

Hlutfallslega mesta fjölgunin á landinu

Hlutfallslega mesta fjölgunin á landinu.

Samkvæmt nýjustu tölum um íbúafjölda sveitarfélaga á landinu og þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar, hefur íbúum í Grímsnes- og Grafningshreppi fjölgað mest frá 1. desember 2024 til 1. ágúst 2025. Á þessum tíma fjölgaði íbúum um 59 manns, sem samsvarar 9,7% aukningu.

„Þetta endurspeglar okkar upplifun. Sveitarstjórn hefur á undanförnum árum verið í miklum uppbyggingarfasa og lagt áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt úrval lóða,“ segir Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, sveitarstjóri.

Skráning frístundalóð tekur stökk í júlí.

Einnig hefur skráning frístundahúsalóða tekið verulegt stökk í sumar. Í júlí voru 110 nýjar lóðir staðfestar í fasteignaskrá HMS, þar af 77 frístundalóðir. Flestar þessara lóða voru skráðar í Grímsnes- og Grafningshreppi, alls 24 lóðir, þar af 22 frístundalóðir.

Mikil uppbygging á Borg.

Búið er að skipuleggja nýtt íbúðahverfi á Borg, þar sem sérstök áhersla er lögð á að byggðin tengist nærliggjandi þjónustukjarna á nýju miðsvæði og gott flæði verði milli innviðanna á svæðinu. Búið er að úthluta 6 verslunar- og þjónustulóðum með blómlegri blöndu af verslun, þjónustu, gistingu, veitingarekstri og menningartengdri starfsemi. Tilbúnar til afhendingar eru 4 einbýlishúsalóðir, 2 parhúsalóðir, 2 raðhúsalóðir og 2 fjölbýlishúsalóðir.

Á heildina litið er gert ráð fyrir 79 lóðum með 160-220 íbúðum, þar sem gert er ráð fyrir sveigjanleika til að fjölga eða fækka íbúðum í rað- og fjölbýli, upp að vissu marki. Hér er um að ræða frábært tækifæri fyrir verktaka og einstaklinga til að taka þátt í uppbyggingu á nýrri og spennandi íbúðabyggð á besta stað á Suðurlandi.

Íbúðarhúsalóðir

Síðast uppfært 14. ágúst 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?