Fara í efni

Íþróttamiðstöðin á Borg auglýsir eftir fólki í afleysingar

Íþróttamiðstöðin á Borg auglýsir eftir starfsfólki í afleysingar í janúar og febrúar. Um er að ræða bæði dagvaktir og kvöldvaktir á virkum dögum.

Starfssvið:

  • Öryggisgæsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
  • Klefavarsla og baðvarsla
  • Afgreiðsla, önnur þjónusta og þrif

Hæfnikröfur:

  • Stundvísi, reglusemi og færni í almennum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, góð yfirsýn.
  • Rík þjónustulund
  • Hreint sakavottorð

Umsækjendur þurfa að ljúka námskeiði í skyndihjálp og standast sundpróf laugarvarða skv. reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda.
Umsóknir skulu berast á netfangið agnar@gogg.is

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsóknarfrestur er til og með 21. desember 2025.

Upplýsingar um starfið veitir Agnar Þór Helgason, forstöðumaður íþróttamannvirkja í í tölvupósti á netfangið agnar@gogg.is

Síðast uppfært 12. desember 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?