Fara í efni

Karen Huld Gunnarsdóttir nýr deildarstjóri fjármála- og stjórnsýslu.

Karen Huld Gunnarsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf deildarstjóra fjármála- og stjórnsýslu hjá sveitarfélaginu Grímsnes- og Grafningshreppi. Karen er með Cand. Oecon próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands sem og Meistarapróf (Master of Accounting and Auditing) frá sama skóla.

Karen hefur starfað sem verkefnisstjóri á endurskoðunarsviði hjá KPMG samtals í um 11 ár. Fyrst á árabilinu 2006-2011 þar sem hún vann við endurskoðun ársreikninga hjá sveitarfélögum auk reikningsskila og annarra bókhalds- og endurskoðunartengdra verkefna fyrir sveitarfélög. Síðar á árabilinu 2019-2025, þar var hún áfram lykiltengiliður og sérfræðingur í fjármálum sveitarfélaga, áætlanagerð, endurskoðun, greiningum og ráðgjöf.

Á milli þessara tímabila hjá KPMG starfaði Karen sem deildarstjóri bókhalds hjá Hafnarfjarðarkaupstað og sem aðalbókari hjá Seltjarnarneskaupstað. Þar sinnti hún og bar ábyrgð á verkefnum á borð við gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana, ársreikningagerð, árshlutauppgjörum, uppgjörum til eftirlitsaðila og skil að skattframtalsgerð. Karen hafði umsjón með verkefnum sem unnin voru í bókhaldi sveitarfélaganna auk uppreiknings og útreikninga bókhaldsliða fyrir uppgjör. Karen starfaði svo um tíma sem ráðgjafi hjá Wise þar sem hún var ráðgjafi við notkun bókhaldskerfisins, tók þátt í uppsetningu, innleiðingu, þarfagreiningu og þróun á framsetningu gagna.

„ Ég er spennt fyrir því að hefja störf hjá Grímsnes- og Grafningshreppi og hlakka til þess að fá tækifæri til að kynna mér rekstur, aðstæður og umhverfi sveitarfélagsins“

Síðast uppfært 19. desember 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?