Fara í efni

Kerhólsskóli

Kerhólsskóli auglýsir eftir kennurum og stuðningsfulltrúum skólaárið 2021-2022.

Í skólanum eru rúmlega sjötíu nemendur í frá eins árs og upp í.10. bekk. Í Kerhólsskóla er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, teymiskennslu og útinám. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði „Uppeldi til ábyrgðar“. Leitað er eftir sjálfstæðu og drífandi fólki með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi.

Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar:

  • List og verkgreinakennari í 100% starf
  • Leikskólakennarar í 100% starf
  • Heimilisfræðikennara í öllum árgöngum. 32% starf.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari
  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð hæfni í samskiptum.
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
  • Þekking á Uppeldi til ábyrgðar kostur.

Einnig er lausar til umsóknar stöður stuðningfulltúa og leiðbeinanda í frístund, starfshlutfall 100%

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð hæfni í samskiptum.
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
  • Þekking á Uppeldi til ábyrgðar kostur.
  • Áhugi á að vinna með börnum.

 Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Umsókn um störfin skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2021. Nánari upplýsingar veitir Jóna Björg Jónsdóttir, skólastjóri í síma 480-5520 og jonabjorg@kerholsskoli.is
Umsóknir sendist á netfangið jonabjorg@kerholsskoli.is

Síðast uppfært 21. apríl 2021
Getum við bætt efni síðunnar?