Fara í efni

Kerhólsskóli auglýsir eftir Íþróttakennara.

Kerhólsskóli auglýsir eftir Íþróttakennara.

Í skólanum eru rúmlega sjötíu nemendur í frá eins árs og upp í 10. bekk. Í Kerhólsskóla er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, teymiskennslu og útinám. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði „Uppeldi til ábyrgðar“. Leitað er eftir sjálfstæðum og drífandi einstakling með þekkingu og áhuga á skólastarfi.

Um er að ræða kennslu í skólaíþróttum, sundi og mögulega einhverjar fleiri greinar.

 Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari
  • Hæfnispróf sundstaða sbr. reglugerð nr. 814/2010
  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð hæfni í samskiptum.
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
  • Þekking á Uppeldi til ábyrgðar er kostur.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Umsóknum um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2021. Nánari upplýsingar veitir Jóna Björg Jónsdóttir, skólastjóri í síma 480-5520 og jonabjorg@kerholsskoli.is Umsóknir sendist á netfangið jonabjorg@kerholsskoli.is

Síðast uppfært 7. júní 2021
Getum við bætt efni síðunnar?