Fara í efni

Laufdal og Drangar undirrita viljayfirlýsingu um samstarf í Miðtúni 1

Laufdal og Drangar hf. undirrituðu þann 27. apríl 2026 viljayfirlýsingu um samstarf sem snýr að
uppbyggingu verkefnisins Miðtún 1 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Viljayfirlýsingin markar
upphaf formlegra viðræðna milli aðila um frekari þróun verkefnisins.

Fyrir hönd Laufdals undirrituðu Eyjólfur Fannar Eyjólfsson og Nökkvi Páll Jónsson. Fyrir hönd
Dranga undirritaði Auður Daníelsdóttir, forstjóri félagsins. Við undirritunina voru einnig viðstödd
Ása Valdís Árnadóttir, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps, og Fjóla Steindóra Kristinsdóttir,
sveitarstjóri.

„Undirritun viljayfirlýsingarinnar er mikilvægt skref í áframhaldandi þróun Miðtúnsreitsins. Við
höfum unnið markvisst að þróun svæðisins undanfarin ár og sjáum skýr tækifæri til að styrkja
þjónustugrunn þess í takt við vaxandi umsvif og eftirspurn. Samstarf við Dranga fellur vel að
þeirri sýn og skapar grundvöll fyrir næstu skref í verkefninu,“ segir Eyjólfur Fannar Eyjólfsson
meðeigenda Laufdals.

Stefnt að uppbyggingu atvinnuhúsnæðis

Samkvæmt viljayfirlýsingunni er stefnt að byggingu um 700 fermetra atvinnuhúsnæðis fyrir
verslun ásamt tilheyrandi frágangi lóðar. Jafnframt er gert ráð fyrir samræmdri tímaáætlun um
skipulag og framkvæmdir, auk viðræðna um frekari uppbyggingu á svæðinu, svo sem
þjónustuinnviði, bílastæði og orkutengda innviði. Verkefnið snýr að uppbyggingu þjónustukjarna
sem ætlað er að mæta vaxandi þörf fyrir verslun og þjónustu á svæðinu.

„Miðtún 1 er spennandi verkefni og teljum við samstarfið tryggja góðan grundvöll fyrir þá
uppbyggingu sem framundan er á svæðinu. Það eru vaxandi tækifæri á þessu svæði og skýr
áhersla á þróun þjónustuinnviða sem rímar vel við markmið Dranga að bjóða viðskiptavinum
góða þjónustuupplifun.“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga

Stuðningur sveitarfélagsins við uppbygginguna

Miðtún 1 er hluti af stærra þróunarverkefni á svæðinu þar sem unnið er að uppbyggingu
verslunar, þjónustu og ferðaþjónustu í Miðtúni 1–11. Innan þess ramma eru Miðtún 3–9
skilgreind sem lóðir fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi með möguleika á íbúðum á efri
hæðum, á áberandi stað í einu fjölfarnasta ferðamannasvæði landsins.
Sérstök áhersla er jafnframt á Miðtún 11, þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu hótels með allt
að 100 herbergjum. Verkefnið er lykilþáttur í að styrkja þjónustuframboð á svæðinu og skapa
aukið virði til lengri tíma, meðal annars með því að styðja við vaxandi eftirspurn ferðaþjónustu á
Suðurlandi.

Verkefnin eru á þróunarstigi og eru hluti af heildstæðri sýn um uppbyggingu þjónustukjarna sem
mætir þörfum íbúa, fyrirtækja og ferðamanna.

„Uppbygging sem þessi styður við áframhaldandi þróun svæðisins og bætir þjónustu fyrir íbúa,
fasteignaeigendur og gesti. Verkefnið fellur að þeirri stefnu sveitarfélagsins að efla innviði og
skapa aðstæður fyrir sjálfbæran vöxt í takt við þróun svæðisins,“ segir Ása Valdís Árnadóttir,
oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps.

Síðast uppfært 7. maí 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?