Fara í efni

Lausar stöður við Kerhólsskóla skólaárið 2022-2023.

Sérkennari/Þroskaþjálfi í 50-100% stöðu. Sérkennari / þroskaþjálfi vinnur náið með verkefnastjóra sérkennslu. Krafa er um nám í uppeldis og menntunarfræðum / kennslufræðum eða þroskaþjálfafræðum.

Leiðbeinandi í frístund í 40% stöðu. Um er að ræða vinnu eftir hádegi í gæslu með nemendum í 1.- 4. Bekk.

Stuðningsfulltrúi á elsta stigi í 60 % stöðu. Stuðningsfulltrúi aðstoðar kennara inni í bekk.

Sami aðili getur verið bæði leiðbeinandi í frístund og stuðningsfulltrúi og er þá í 100% starfshlutfalli.

Í skólanum eru um sjötíu nemendur í frá eins árs og upp í 10. bekk. Í Kerhólsskóla er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, teymiskennslu og útinám. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði „Uppeldi til ábyrgðar“. Leitað er eftir sjálfstæðu og drífandi fólki með áhuga á skólastarfi.

Hæfniskröfur fyrir allar stöðurnar:

  • Góð hæfni í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Áhugi á fræðslu og velferð barna.
  • Góð íslenskukunnátta.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Umsóknum um störfin skal fylgja skrá yfir nám, fyrri störf og meðmælendur.

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2022.
Nánari upplýsingar veitir Jóna Björg Jónsdóttir, skólastjóri í síma 480-5520 og jonabjorg@kerholsskoli.is
Umsóknir sendist á netfangið jonabjorg@kerholsskoli.is

Síðast uppfært 9. ágúst 2022
Getum við bætt efni síðunnar?