Fara í efni

Leikfélag Sólheima hlýtur Menningarverðlaun Suðurlands 2026

Leikfélag Sólheima hlaut Menningarverðlaun Suðurlands 2026 við hátíðlega athöfn í LAVA Centre á Hvolsvelli fimmtudagskvöldið 29. október. Verðlaunin voru afhent í tengslum við ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, SASS.

Viðurkenningin er veitt fyrir ómetanlegt framlag leikfélagsins til menningarlífs á Suðurlandi, frumkvöðlastarf í inngildingu og áratugalanga rækt við barnamenningu. Tilnefningar bárust um 23 verkefni og einstaklinga, valið á Leikfélagi Sólheima var samdóma niðurstaða úthlutunarnefndar.

Leikfélagið var stofnað árið 1931 og fagnar því 95 ára starfsafmæli á þessu ári. Það er meðal elstu starfandi áhugaleikfélaga landsins og hefur lengi skipað mikilvægan sess í menningarlífi Grímsnes- og Grafningshrepps. Sýningar félagsins hafa glatt kynslóðir barna og fjölskyldna og vakið athygli langt út fyrir sveitarfélagið.

Í rökstuðningi dómnefndar var sérstaklega vakin athygli á því að fatlaðir og ófatlaðir hafi frá upphafi unnið saman að listsköpun á jafningjagrundvelli. Þá var lögð áhersla á listrænan metnað félagsins og óeigingjarnt starf sjálfboðaliða sem hefur verið ein af meginstoðum starfseminnar.

Grímsnes- og Grafningshreppur óskar Leikfélagi Sólheima og öllum sem að starfseminni koma innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu. Við erum stolt af því öfluga menningarstarfi sem félagið hefur haldið uppi í sveitarfélaginu í nær heila öld.

Nánar má lesa um verðlaunin á vef SASS.

Síðast uppfært 30. október 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?