Fara í efni

Líf og fjör í Gömlu Borg: Söguleg frumsýning við frábærar undirtektir

Leiklistin sneri aftur í Gömlu Borg í Grímsnesi í gærkvöldi þegar leikritið Afsakið hlé! eftir Árna Ibsen var frumsýnt við frábærar undirtektir. Sýningin markar ákveðin tímamót, en þetta er fyrsti opinberi viðburðurinn í húsinu síðan Grímsnes- og Grafningshreppur keypti húsið fyrr á þessu ári. 

Það var virkilega gaman að sjá þetta sögufræga hús fá nýtt líf og fyllast af gestum á ný. Leikfélagið Borg flutti þennan grafalvarlega gjaldþrotafarsa undir leikstjórn Lilju Nætur Þórarinsdóttur og var hlegið hátt og snjallt í salnum. Með sýningunni er rofið tæplega 60 ára hlé á leikstarfsemi í húsinu, en Gamla Borg var helsta samkomuhús sveitarinnar á árum áður.

Stemningin í gærkvöldi gefur góð fyrirheit um framtíð Gömlu Borgar sem lifandi menningarhúss. Það er ánægjulegt að sjá húsið á ný verða vettvang samveru og menningarlífs í sveitarfélaginu.

Sýningar verða á næstu dögum og eru öll hvött til að láta þessa einstöku upplifun ekki fram hjá sér fara. Afsakið Hlé! | Tix

Síðast uppfært 17. október 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?