Fara í efni

Listaverk í stjórnsýsluhúsi Grímsnes- og Grafningshrepps

Verk eftir myndlistarmennina Jakob Veigar Sigurðsson og Öldu Rose Cartwright prýða nú stjórnsýsluhús Grímsnes- og Grafningshrepps. Verkefnið er unnið í samstarfi sveitarfélagsins og Listasafns Árnesinga og er liður í því að færa myndlist nær fólki og skapa lifandi og skapandi umhverfi í daglegu starfi.

Listasafn Árnesinga hefur áður staðið að sambærilegu verkefni í Ráðhúsi Árborgar. Safnið er í eigu Héraðsnefndar Árnesinga, sem öll sveitarfélög Árnessýslu eiga aðild að, og eitt af markmiðum þess er að styðja við og vekja athygli á starfandi myndlistarmönnum með tengsl við svæðið. Með verkefnum sem þessum fær myndlistin jafnframt að stíga út fyrir hefðbundið sýningarrými og verða hluti af hversdagslegu umhverfi íbúa og starfsfólks.

Jakob Veigar Sigurðsson (1975) er uppalinn í Hveragerði en býr og starfar í Vínarborg. Hann lauk BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2016 og framhaldsnámi frá Akademie der bildenden Künste í Vínarborg árið 2019. Málverkið er hans helsti miðill og einkennast verk hans af kraftmikilli litanotkun og tjáningu þar sem persónuleg reynsla, samfélagið og sterk tengsl við náttúruna fléttast saman. Jakob hefur sýnt verk sín víða hér á landi og erlendis. Árið 2023 hélt hann stóra einkasýningu í Listasafni Árnesinga undir yfirskriftinni Megi hönd þín vera heil.

Alda Rose Cartwright (1981) er íslensk-bandarísk myndlistarkona sem býr og starfar á Suðurlandi. Hún lauk BFA-gráðu frá Academy of Art University í San Francisco árið 2008 og meistaragráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands árið 2012. Í verkum hennar fléttast minningar, draumar og staðir saman í brotakennd augnablik þar sem mörk tíma og veruleika verða óljós. Hún vinnur með það hvernig minningar um landslag, staði og upplifanir breytast með tímanum, smáatriði fölna en tilfinningar og einstök brot lifa áfram. Náttúruleg form, litir og táknmyndir verða að eins konar akkerum í tíma og mynda órætt landslag þar sem fortíð og nútíð, draumur og veruleiki renna saman. Í verkum sínum rannsakar Alda hvernig hverful augnablik og tengsl okkar við staði varðveitast og umbreytast og verða hluti af því hvernig við skynjum okkur sjálf og umhverfi okkar.

Verk Jakobs og Öldu skapa ólíka en áhugaverða nálgun á liti, landslag, minningar og upplifun. Með því að færa verk þeirra inn í bæjarskrifstofurnar verður myndlistin hluti af daglegu umhverfi og gefur starfsfólki og gestum tækifæri til að staldra við, skoða og upplifa samtímalist utan hefðbundins sýningarsalar.

 

Fimmtudaginn 17. desember kl. 15:00 verður svo boðið upp á listamannaspjall með Jakobi Veigari Sigurðssyni og Öldu Rose Cartwright í stjórnsýsluhúsinu á Borg. Þar munu listamennirnir segja frá verkum sínum, vinnuferli og þeim hugmyndum og reynslu sem liggja að baki verkunum.

Síðast uppfært 6. nóvember 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?