Fara í efni

Skrifstofa Grímsnes- og Grafningshrepps - Lokað frá kl. 8:00 - 12:00, 26. mars 2026 vegna veðurviðvörunar.

Veðurspáin fyrir næsta sólahring er nokkuð slæm, appelsínugul frá um kl. 7 í fyrramálið fram á miðjan dag vestan til sem gengur síðan austur yfir land að einhverju leiti.
Nokkuð ljóst er að færð mun spillast að einhverju leiti og einnig er varað við hættu á foktjóni.

Skrifstofa Grímsnes- og Grafningshrepps verður lokuð frá kl. 8:00 - 12:00, 26. mars 2026 vegna veðurviðvörunar.

Staðan verður metin kl. 12:00 og opnað ef aðstæður leyfa.
Ef erindi getur ekki beðið þá vinsamlegast sendið póst á linda@gogg.is

Upplýsingar um veður: vedur.is

Gul
Suðaustan hvassviðri og hríð (Gult ástand)
26 mar. kl. 05:00 – 07:00
Suðaustan 15-23 m/s og vindhviður staðbundið yfir 33 m/s. Búast má við talsverðri snjókomu með skafrenningi og slæmu skyggni og versnandi færð. Afmarkaðar samgöngutruflanir og lokanir á vegum eru líklegar, einkum undir Eyjafjöllum eða á Hellisheiði. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.

Appelsínugul
Suðaustan rok og stórhríð (Appelsínugult ástand) 26 mar. kl. 07:00 – 13:00
Suðaustan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu eða slyddu með slæmu skyggni og versnandi færð. Ekkert ferðaveður. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk hvatt til að tryggja lausamuni.

Vegagerðin hefur einnig gefið út að vegir muni lokast vegna þessa svo sem Hellisheiðin og Þrengslin frá kl. 04.00 í nótt.

https://www.vegagerdin.is/vegagerdin/starfsemi/frettir/lokanir-a-fjolmorgum-vegum-og-ovissa-med-reykjanesbraut

Síðast uppfært 25. mars 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?