Lýðheilsu og tómstundastyrkur
01.10.2020
Sveitarstjórn hefur samþykkt að hækka lýðheilsu- og tómstundastyrk í 60.000 krónur á einstakling.
Grímsnes- og Grafningshreppur veitir foreldi/forráðamanni barna á aldrinum 5 – 18 ára og eldri borgurum 67 ára og eldri styrk til að stunda íþrótta-, tómstunda- og menningarstarf.
Meginreglan er sú að skipulagt tómstundastarf nái yfir 6 vikur samfellt. Hægt er að ráðstafa styrk til styttri námskeiða, enda uppfylli námskeiðið önnur skilyrði um styrkhæfi.
Ungmenni í framhaldsskóla geta nýtt sér styrkinn til kaupa á árskortum í líkamsrækt.
Allar upplýsingar um lýðheilsu og tómstundastyrkinn má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.
Hægt er að sækja um styrkinn á heimasíðu eða á skrifstofu sveitarfélagsins.
Síðast uppfært 25. nóvember 2025