Malbikunarframkvæmdir á Suðurlandsvegi 12. og 13. ágúst
Vegna veðurs seinkar malbikunarframkvæmdum til kl. 09:30 á fimmtudagmorgun.
Framkvæmdir halda svo áfram á fimmtudagskvöld 13. ágúst, frá kl. 21:00 samkvæmt áætlun.
Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:
Miðvikudagskvöld 12. ágúst og fimmtudagskvöld 13. ágúst er stefnt á malbikun á Suðurlandsvegi austan við Selfoss.
Annari akreininni er lokað sitthvort kvöldið á um 1,3 km kafla við Bitru.
Hliðavegir lokast tímabundið á meðan farið er framhjá.
Umferð verður stýrt framhjá framkvæmdasvæðinu og merkingar settar upp skv. viðhengdri merkingaráætlun 8.0.86.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 21:00 til kl. 07:00 bæði kvöldin.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.