Fara í efni

Margar hendur vinna létt verk

Við hjá Landsvirkjun höfum árum saman starfrækt sumarvinnuflokka sem sinna uppbyggingu og fegrun starfsstöðva fyrirtækisins og nágrennis.
Jafnframt taka flokkarnir að sér ýmis samstarfsverkefni með nágrönnum okkar vítt og breitt um landið.
Við bjóðum fram vinnu sumarvinnuhópa og verkstjórn í verkefni sem lúta að ræktun, hreinsun, viðhaldi og öðrum umhverfisbótum, ásamt ýmsum samfélagsverkefnum.
Óskað er eftir að samstarfsaðilar leggi fram vel skilgreind verkefni. Umsóknarfrestur er til 18. maí. Fyrirspurnir má senda til: 
lettverk@landsvirkjun.is
Hægt er að sækja um á heimasíðunni
https://www.landsvirkjun.is/margar-hendur

Síðast uppfært 10. maí 2021
Getum við bætt efni síðunnar?