Móttaka framboðslista vegna sveitarstjórnarkosninga í Grímsnes- og Grafningshreppi 16. maí 2026
Framboðsfrestur vegna sveitastjórnarkosninga, sem fram fara 16. maí 2026 rennur út kl. 12.00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026. Kosið verður til sveitarstjórnar í Grímsnes– og Grafningshreppi. Framboðslistar skulu hafa borist yfirkjörstjórn Grímsnes– og Grafningshrepps áður en framangreindur framboðsfrestur rennur út.
Yfirkjörstjórn Grímsnes– og Grafningshrepps tekur á móti framboðsgögnum föstudaginn 10. apríl frá kl. 11.00 – 12.00 í fundarherberginu Búrfell á annari hæð í nýja stjórnsýsluhúsinu á Borg.
Framboðslistunum skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi gefið samþykki sitt fyrir því að nöfn þeirra séu á listanum, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift. Gæta skal þess að tilgreina með skýrum hætti fullt nafn frambjóðanda, kennitölu hans og lögheimili, þannig að enginn vafi leiki á því hver sé í kjöri.
Meðmæli með framboðinu – að lágmarki 20 og hámarki 40. Hægt er að safna meðmælum rafrænt á Ísland.is Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar | Ísland.is
Heimilt er að safna meðmælum á pappír. Mælst er til þess að framboð slái meðmælin inn í rafræna meðmælakerfið. Skila þarf inn frumriti til yfirkjörstjórnar sveitarfélagsins.
Eyðublað fyrir framboðslista er að finna á vef landskjörstjórnar.
Þá skal með hverjum framboðslista fylgja skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um hverjir séu umboðsmenn listans. Upplýsingar um nafn, fæðingardag, netfang og símanúmer umboðsmanns skal fylgja tilkynningunni ásamt skriflegu samþykki hans. Samþykkið getur verið undirritað eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift.
Sýnishorn af tilkynningu um framboð og umboðsmenn má finna á vef landskjörstjórnar.
Nánari upplýsingar um söfnun meðmæla og skil framboða og framboðslista má finna í reglugerð nr. 254/2024 og þá má einnig finna nánari upplýsingar og eyðublöð vegna skila á framboðum á vef landskjörstjórnar.
Borg, 7. apríl 2026
Yfirkjörstjórn Grímsnes– og Grafningshrepps
Bragi Svavarsson
Valgeir Fridolf Backman
Elín Bergsdóttir