Fara í efni

Ný sveitarstjórn tekin til starfa – Fjóla áfram sveitarstjóri

Nýkjörin sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps kom saman til fyrsta fundar síns miðvikudaginn 3. júní 2026.

Á fundinum var Guðmundur Finnbogason kjörinn oddviti sveitarstjórnar og Rebekka Lind Guðmundsdóttir varaoddviti. Jafnframt var staðfest ráðning sveitarstjóra en Fjóla Steindóra Kristinsdóttir var ráðin áfram til starfa sem sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps. Fjóla hóf störf hjá sveitarfélaginu í febrúar 2025.

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps skipa Guðmundur Finnbogason, Rebekka Lind Guðmundsdóttir, Bergur Guðmundsson og Ragnheiður Eggertsdóttir af A-lista, auk Andrésar Bertelsen af Ö-lista.

Á fyrsta fundi sveitarstjórnar var skipað í embætti og nefndir sveitarfélagsins auk þess sem farið var yfir ýmis málefni sem bíða afgreiðslu á nýju kjörtímabili. Mikill hugur var í hópnum og ríkur vilji til að vinna að áframhaldandi uppbyggingu og þróun sveitarfélagsins í góðu samstarfi við íbúa, starfsfólk, fasteignaeigendur, fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila.

Fjóla segist spennt fyrir komandi samstarfi og er þakklát fyrir það traust sem henni er sýnt.

„Ég er afar þakklát fyrir það traust sem sveitarstjórn sýnir mér. Grímsnes- og Grafningshreppur er sveitarfélag í mikilli sókn og fram undan eru fjölbreytt og spennandi verkefni. Ég hlakka til komandi samstarfs og til að vinna áfram að uppbyggingu og þróun þessa öfluga samfélags,“ segir Fjóla.

Bjartsýni einkenndi fyrsta fund nýrrar sveitarstjórnar og ríkti almenn trú á áframhaldandi jákvæðri þróun sveitarfélagsins á komandi kjörtímabili.

Sveitarfélagið óskar sveitarstjórn og sveitarstjóra til hamingju og velfarnaðar í störfum sínum.

Síðast uppfært 3. júní 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?