Fara í efni

Nýr skrifstofustjóri hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs.

 

Nanna Jónsdóttir hefur verið ráðin í starf skrifstofustjóra Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs. Hún tók við starfinu 1. mars sl. en starfið var auglýst í síðari hluta október í samstarfi við Hagvang.

Nanna er með BA í opinberri stjórnsýslu, APME í verkefnastjórnun og alþjóðlega IPMA vottun sem verkefnisstjóri.

Nanna á að baki fjölbreytta starfsreynslu úr einkageiranum og hjá hinu opinbera og hefur þekkingu og reynslu á stjórnsýslu og fjármálum sveitarfélaga. Samhliða námi og fyrri störfum hefur Nanna gegnt margs konar ábyrgðar- og trúnaðarstörfum auk þess sem hún hefur sinnt eigin rekstri.

Síðast uppfært 5. apríl 2023
Getum við bætt efni síðunnar?